Störf þingsins.
Herra forseti. Hvað eiga Malta, Kýpur, Mónakó, Lúxemborg, Svartfjallaland og Andorra sameiginlegt? Allt eru þetta fámenn evrópsk ríki. Að því leytinu til eru þau eins og Ísland, enda taka þau þátt í smáþjóðaleikunum með okkur. En þau eru frábrugðin Íslandi að því leytinu til að þau nota evru sem gjaldmiðil og í dag er verðbólgan í þessum ríkjum lægri en á Íslandi. Sem sagt: Sex evrópsk smáríki með evru og lægri verðbólgu en á Íslandi. Í þessu ljósi verður að teljast stórfurðulegt, eins og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson benti á hér áðan, að seðlabankastjóri skuli í gær hafa valið Eystrasaltslöndin sem einhverja staðfestingu eða sönnun á því að verðbólga væri hærri á Íslandi ef við værum með evru — meira að segja miklu hærri, sagði hann.
Af hverju ætti Ísland með evru endilega að vera nær evrulöndunum Eistlandi, Lettlandi og Litháen í verðbólgutölum heldur en evrulöndunum Möltu, Kýpur, Mónakó, Lúxemborg, Svartfjallalandi og Andorra? Er seðlabankastjóri að ýja að því að við Íslendingar séum að færa sambærilegar fórnir og Eystrasaltslöndin gera vegna nálægðar þeirra við Rússa og stríðið í Úkraínu? Á evrusvæðinu er verðbólga líka lægri á Spáni, Þýskalandi, Frakklandi, Portúgal, Belgíu, Hollandi, Grikklandi, Finnlandi, Vatíkaninu og Slóveníu heldur en hér á Íslandi. Svo er verðbólgan á niðurleið á Ítalíu og í Slóveníu á meðan hún er á uppleið hér. Það þarf vart að taka það fram, úr því að við erum að gera þennan samanburð, að vextir eru miklu, miklu hærri hér en í fyrrtöldum ríkjum.
Við vitum að seðlabankastjóri er í nauðvörn eftir að hafa sett Evrópumet í vaxtahækkunum á fáeinum mánuðum. Við vitum líka að ríkisstjórnin er að gera verkefni hans nánast ómögulegt með arfaslakri hagstjórn, að ekki sé talað um þá óskammfeilni einstakra ráðherra að beina ábyrgðinni á vöxtum og verðbólgu beint á bankann. Við hljótum að gera þá kröfu til Seðlabankans og stjórnenda hans að þeir villi ekki um fyrir landsmönnum með kirsuberjatínslu af verstu sort. Það á ekki að vera mottó í Seðlabankanum að betra sé að veifa röngu tré en öngu.