153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

Störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf):

Virðulegi forseti. Við Íslendingar njótum mikilla forréttinda. Við búum hér á þessu gjöfula landi þar sem við njótum friðar og öryggis, góðrar menntunar og frelsis til að vera eins og við viljum að langmestu leyti. Það var nefnt í umræðum hér í gær að við ásamt Sviss og Noregi værum þau ríki í Evrópu sem búa við hvað mest efnisleg gæði. Það er reyndar þannig samkvæmt tölum Alþjóðabankans um verga landsframleiðslu á mann, leiðrétta fyrir kaupmætti árið 2021, að þá voru Noregur og Sviss allnokkuð fyrir ofan okkur. Og það voru líka Evrópusambandslöndin Lúxemborg, með rúmlega tvöfalda landsframleiðslu á mann miðað við okkur, Írland, Danmörk, Holland, Svíþjóð, Belgía, Austurríki og Þýskaland. En engu að síður, við höfum það mjög gott.

Við njótum líka þeirra forréttinda að geta ferðast um allan heim á vegabréfinu okkar. Við erum nánast alls staðar aufúsugestir, erum ekki tekin í harðar yfirheyrslur á landamærum um hvað það sé eiginlega sem við séum að vilja á þeim stað sem við lendum. Við erum vissulega í hópi þeirra þjóða sem hafa það allra best í heimi hér. Að auki þurfa ungir Íslendingar aldrei að sinna herþjónustu eða lenda í þeirri stöðu að þurfa að láta lífið í nafni föðurlandsins. Við höfum komið því þannig fyrir að ef til þess kemur að það þurfi að verja landið okkar þá fellur það í skaut annarra að færa hina endanlegu fórn fyrir frelsi þess.

Það er því tilefni til að þakka forsjóninni fyrir þessi örlög sem voru á engan hátt fyrirsjáanleg fyrir fáum öldum síðan. Engu að síður er það svo að okkur tekst ekki að halda þannig á málum að allir borgarar þessa lands búi við efnahagslegt öryggi. Dýrtíðin hér er með þeim hætti að ótrúlega margir glíma við það að ná ekki endum saman um mánaðamót og þurfa að safna skuldum til þess eins að borða, greiða fyrir húsnæði og komast í vinnuna á bílnum. Ef veikindi ríða yfir eru ýmsar áskoranir sem bíða í undirfjármögnuðu og undirmönnuðu heilbrigðiskerfi.

Það er hlutverk okkar sem hér erum að sjá til þess að þetta sé ekki svona. Hér þarf að lækka framfærslukostnaðinn með markvissum aðgerðum í anda norræna velferðarmódelsins. (Forseti hringir.) Því miður hefur það ekki verið gert þrátt fyrir efnahagslega stöðu okkar með Sviss og Noregi (Forseti hringir.) og hinum ríkari hópi Evrópusambandsríkja. Hvers vegna er það svo? Getur verið að það sé eitthvað skakkur kúrsinn á þjóðarskútunni?