153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

ákvarðanir nr. 69/2021 og nr. 70/2021 um breytingar á XIX. viðauka og nr. 270/2022 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn.

738. mál
[15:42]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Ég gerði sömu mistök og í gær, ég hefði kannski frekar átt að fara í andsvör en að halda ræðu. Ég ætlaði bara að segja að ég held mikið upp á þennan viðauka. Ég held að hann sé til þess fallinn að bæta vernd neytenda hér á Íslandi, eins og fram kom í framsögu hæstv. utanríkisráðherra. Hins vegar er talað um að með innleiðingu þessara gerða sé verið að gera breytingar á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, hvað varðar vanefndir og galla. Mig langaði bara að tékka aðeins á því að hvaða leyti, af því að það stendur í greinargerðinni, minnir mig, við þennan viðauka að hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra leggi fram frumvarp varðandi breytingu á lögum um neytendakaup. Það er bara flott og frábært. En ég væri til í að vita að hvaða leyti verið er t.d. að breyta galla. Er verið að breyta gallahugtakinu í lögum um neytendakaup? Er verið að breyta tímamarki galla? Og sama með vanefndaúrræðið, felur þetta í sér einhverjar efnislegar breytingar? Ég veit þó að þær breytingar sem munu verða á íslenska lagabálknum mega ekki ganga skemur eða lengra en núverandi íslensk lög. Því langar mig að vita hvort það sé komin einhvers konar hugmynd um hvernig á að útfæra þessar breytingar í samræmi við íslensku lögin.

Annars tel ég þetta bara vera til hagsbóta. Og eins og ég talaði um í gær held ég að það sé mikilvægt að samræma regluverkið okkar þegar kemur að viðskiptum, neytendakaupum og kröfurétti yfirhöfuð til samræmis við hin EES-löndin og þannig auka möguleika á viðskiptum utan Íslands.

En ég biðst enn og aftur afsökunar, ég hefði kannski frekar átt að fara í andsvör.