hungursneyðin í Úkraínu.
Frú forseti. Mig langaði bara að koma hingað upp til að þakka hv. þingmanni fyrir málið og fagna því að sjá fulltrúa frá öllum flokkum á Alþingi á málinu, sem mér finnst mikill sómi að. Ég veit og hef rætt það persónulega við mína kollega í Úkraínu að þetta skiptir þau ótrúlega miklu máli. Þetta er fyrst og síðast viðurkenning á voðaverkum. Þetta er táknrænn stuðningur og sérstaklega mikilvægur í þeim ómennsku aðstæðum sem þau eru í núna. Eftir tvo daga er ár liðið frá því að Rússar ákváðu að, ekki hefja en gera innrás og fara í algert, tilgangslaust stríð. Í ljósi þess að sú stund er að renna upp eftir tvo daga þykir mér líka sómi að því að verið sé að mæla fyrir málinu núna og ég hlakka til að geta komið því áleiðis og geri ráð fyrir því að Alþingi samþykki þessa þingsályktunartillögu. Við getum sagt frá því að Ísland hafi ályktað með þessum hætti, af því að það skiptir máli. Það skiptir máli fyrir söguna en líka fyrir samtímann, og það skiptir máli fyrir það sem koma skal og hefur líka óbein áhrif á þá tíma sem við lifum núna. Því þakka ég kærlega fyrir að þetta mál sé komið fram og óska auðvitað þinginu góðs gengis með afgreiðslu á málinu, sérstaklega af því að um það ríkir, að því er virðist, þverpólitísk sátt.