153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

hungursneyðin í Úkraínu.

581. mál
[15:50]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra andsvarið og fyrir hvatninguna og brýninguna. Ég tek undir hvert orð hæstv. ráðherra og langar bara til að undirstrika hvað það er mikilvægt að málið fari í gegnum þinglega meðferð og tek jafnframt undir þau orð hæstv. ráðherra og mikilvægi þess að við samþykkjum þetta mál hér á Alþingi.