153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

hungursneyðin í Úkraínu.

581. mál
[15:52]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir meðflutninginn og fyrir að vekja athygli á fleiri voðaverkum frá þessum tíma því að eins og við vitum og þekkjum þá hefur það verið lenskan að Rússar hafa staðfastlega neitað að hafa framið ýmis voðaverk eins og þau sem hv. þingmaður telur hér upp. Við sjáum merki um þennan falsflutning og afneitun Rússa á sögunni. Við sáum það í ræðu Pútíns í gær. Við sáum slíkan málflutning í aðsendri grein í íslenskt tímarit í dag frá sendiherra Rússlands. Þannig að ég tel það mjög mikilvægt að við rifjum þessi mál upp og vekjum athygli á þeim sem oftast í sama tilgangi og við leggjum þetta mál fram einmitt núna til þess að þau endurtaki sig ekki. Við vitum að fólk víðs vegar um öll Sovétríkin varð fyrir miklum áhrifum vegna kúgunar alræðisstjórnar Stalíns, við þekkjum það, í sama tilgangi. Og þær tilraunir sem voru gerðar til að bæla niður þjóðarvitund voru ekki bundnar við Úkraínu. Þetta mál sem við tölum um hér í dag stendur e.t.v. upp úr sökum gríðarlegs fjölda fórnarlamba. En það er full ástæða til þess að skoða umrædd mál, ég tek undir orð hv. þingmanns varðandi það.