hungursneyðin í Úkraínu.
Frú forseti. Það er ástæða til að fagna framkominni tillögu Diljár Mistar Einarsdóttur og þingmanna úr öllum flokkum á hinu háa Alþingi um að Alþingi álykti um að hungursneyðin í Úkraínu, sem stóð yfir frá 1932–1933, hafi verið hópmorð. Breski sagnfræðingurinn Eric Hobsbawm kallaði 20. öldina öld öfganna og skrifaði um það gagnmerka sagnfræðibók. Hann talar reyndar þá um hina stuttu 20. öld, frá 1914–1991, þegar kalda stríðinu lauk og mörg okkar héldu að allt færðist til betri vegar í heimi hér.
Öld öfganna einkennist af alræðisstjórnum, eins og Stalínsstjórninni í Sovétríkjunum, Maó Tse-tung í Kína, Pol Pot í Kambódíu, að ógleymdu þriðja ríki Hitlers. Það skiptir mjög miklu máli að við hér í upphafi 21. aldar höldum ekki bara sagnfræðinni sem slíkri til haga, þ.e. að við munum og gleymum ekki því sem gerðist, heldur að við sýnum því virðingu með því að viðurkenna að slíkt hafi verið gert, með samþykkt tillögu eins og þeirrar sem hér er til umræðu. Það er pólitískt mjög mikilvægt. Í þessu tilviki er það mjög mikilvægt fyrir Úkraínu og vegna innrásarstríðs Rússlands, það sem nú hefur staðið í rétt ár, að við sendum þessi skýru pólitísku skilaboð frá Alþingi Íslendinga þangað á þessari stundu.
Mig langar líka að minna á aðra tillögu sem verður vonandi tekin hér til umfjöllunar bráðlega. Hún varðar annað hópmorð sem framið var í upphafi aldar öfganna. Það var þjóðarmorð Tyrkja við upplausn Ottóman-veldisins við lok fyrri heimsstyrjaldar þegar Armenar voru sendir á vergang og út í opinn dauðann og létu lífið hundruðum þúsunda saman, jafnvel ein til tvær milljónir manna. Armenía hefur lengi barist fyrir því að þetta sé viðurkennt og tillaga þessa efnis liggur nú hér frammi á hinu háa Alþingi.
En nú erum við að ræða Holodomor. Við erum að ræða um Úkraínu og kannski að horfast í augu við það að hryllingur sögunnar getur endurtekið sig. Að þegar alræðisstjórnir fá að starfa óáreittar, þegar stjórnmálamenn og leiðtogar, í þessu tilviki forseti Rússlands getur náð þeim tökum á löggjafa og fjölmiðlum, og þar með almenningi, að hann getur skipað sjálfan sig forseta til 2036, þá eigum við á hættu að lönd fari þá leið sem þarna var farin með manngerðri hungursneyð í Úkraínu sem var gagngert til þess að halda Úkraínumönnum niðri eða með innrás í Úkraínu, eins og þá sem við horfðum upp á og höfum verið að fylgjast með núna síðastliðið ár.
Það eru því miður válynd veður í alþjóðamálunum. Það er fyrir okkur mörg, held ég, erfitt að horfast í augu við þessa stöðu. Við vorum fyrir 30 árum vongóð og full bjartsýni um að lok kalda stríðsins færðu okkur frjálsari heim, frjálsari lönd, frjálslyndari stjórnmál, jafnvel öðruvísi stjórnmálamenn og að við kæmumst á betri stað en við vorum á. Það er þess vegna nokkuð erfitt, finnst alla vega þeirri sem hér stendur, að horfast í augu við stöðuna í Evrópu eins og hún er í dag og svo sem stöðu heimsmála almennt. En um það er svo sem ekki annað að segja en að það er sá veruleiki sem við þurfum að eiga við og horfast í augu við.
Að lokum vil ég ítreka þakkir til 1. flutningsmanns tillögunnar og geri ráð fyrir því, í ljósi þess hversu rík samstaða er um þetta mál hér á Alþingi, að tillagan hljóti afgreiðslu og verði samþykkt á yfirstandandi þingi.