hungursneyðin í Úkraínu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og meðflutninginn. Mig langaði til að koma hingað upp af því að margt af því sem hv. þingmaður fór yfir hefur verið mér svo sérstaklega hugleikið. Hv. þingmaður talaði um öld öfganna og hversu full vonar og bjartsýni við vorum og fólk var þegar henni lauk, en svo horfumst við í augu við það í dag að hryllingur sögunnar getur sannarlega endurtekið sig. Síðast í hádeginu í dag þá sat ég með vini mínum þar sem við vorum að ræða þetta mál og önnur válynd veður í alþjóðapólitíkinni. Við spurðum okkur þeirrar spurningar: Hvar endar þetta? Af því að hv. þingmaður er fyrsti flutningsmaður annarrar tillögu, eins og hv. þingmaður nefndi, sem varðar þjóðarmorð á Armenum, þá tek ég heils hugar undir orð hv. þingmanns varðandi framgang þeirrar tillögu sem ég er sömuleiðis meðflutningsmaður á.