hungursneyðin í Úkraínu.
Virðulegur forseti. Ég er hingað kominn til að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að vera flutningsmaður þessarar tillögu og mig langar líka til að þakka öllum hinum flutningsmönnum tillögunnar, kannski sérstaklega þeim sem hér hafa tekið til máls í dag. Þetta hafa verið mjög góðar umræður og góðir punktar komið fram.
Það er á stundum sem þessum sem mér finnst virðing Alþingis rísa hvað hæst, þegar við sýnum að við erum hlekkur í keðju þjóðþinga, lýðvelda og ríkja heims sem virða mannréttindi og lýðræðislega stjórnarhætti. Því miður hefur þeim ríkjum farið fækkandi í heiminum undanfarin ár. Hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir talaði um það í sinni góðu ræðu hvað við vorum bjartsýn fyrir 30 árum — ég er einn af þeim sem man þá tíma — og trúðum því eins og ágætur bandarískur fræðimaður, Francis Fukuyama, sagði; að sögunni, þ.e. þessari hugmyndafræðilegu togstreitu um hvernig við ættum að byggja sómasamlegt mannlegt samfélag, væri lokið og fram undan væru tímar framsóknar lýðræðis, mannréttinda og viðskiptafrelsis.
En við vorum því miður fljótt dregin niður á jörðina, auðvitað strax með stríðunum í Júgóslavíu og síðan með þeim atburðum sem áttu sér stað í upphafi þessarar aldar, árásinni á tvíburaturnana og Washington o.s.frv. Það er gríðarlega mikilvægt, þótt langur tími sé liðinn síðan þessi morð áttu sér stað, næstum 100 ár, að halda minningu slíkra atburða á lofti. Það var nefnt í umræðu um EES-samninginn í gær að þriðjungur Íslendinga, ef ég man tölurnar rétt — þið leiðréttið mig ef svo er ekki — væri fæddur eftir að EES-samningurinn gekk í gildi. Þetta er þá fólk sem var ekki heldur fætt þegar við stóðum bjartsýn og fögnuðum hruni Berlínarmúrsins og endalokum sögunnar, eins og það var kallað. Þess vegna þarf að rifja þessa hluti upp. Það er þó ekki lengra síðan þetta gerðist en svo að foreldrar mínir voru báðir fæddir þegar þetta átti sér stað; því nær keðja mannlífsins þangað og auðvitað langt aftur.
Enn og aftur lýsi ég þakklæti og virðingu til þeirra sem flytja þessa tillögu og styð hana heils hugar. Takk fyrir.