153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

hungursneyðin í Úkraínu.

581. mál
[16:09]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka flutningsmanni þessarar tillögu, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, fyrir góða framsögu. Ég vil líka fagna þeirri þverpólitísku samstöðu sem er um þetta mál, sem er náttúrlega angi af mikilli samstöðu um stuðning við Úkraínu og andstöðu við alræðisstjórnina í Rússlandi og tilburði þeirra til þess í rauninni að endurvekja það sem stjórnvöld þar líta á sem svolítið glæsta fortíð þar sem þjóðir voru sameinaðar og oft kúgaðar undir formerkjum alræðisstjórnar og allsherjarríkis. Holodomor er hugtak sem Úkraínumenn vilja sjálfir nota yfir þessa hungursneyð sem snertir þá, eins og hér hefur verið rakið, alveg sérstaklega þó að hún hafi haft áhrif á fleiri. Þetta hugtak myndi þýðast beint yfir á íslensku sem hungurmorð, sem virkar bara ágætlega á íslensku.

Það hefur í gegnum tíðina verið rökrætt fram og til baka af fræðimönnum og öðrum um nákvæmar skilgreiningar, hvort þetta falli undir þjóðarmorðs- eða hópmorðshugtakið og hvort þetta hafi verið viljandi gert eða hvort það skipti máli að Úkraínumenn hafi orðið fyrir þessu sérstaklega, hvort það hafi verið viljandi. Alþjóðasamfélagið, sérstaklega á síðari árum, hefur verið að hallast mjög að því að það sé fullkomlega eðlilegt að skilgreina þetta sem hópmorð gegn Úkraínubúum og að þetta hafi verið angi af stærri og yfirgripsmeiri stefnu sem snerist um að bæla niður þjóðarvitund þeirra.

Þetta er, eins og ég kom inn á í upphafi ræðunnar, dálítið stefna sem núverandi Rússlandsstjórn er að reyna að endurvekja og það er orðræða sem hefur verið undirbúin þar í áraraðir. Í rauninni má líta á það sem undirbúning að því sem Rússar eru að gera í Úkraínu, svona orðræða um að þessar þjóðir og þessi ríki séu ekki lögmæt og tilheyri bara Rússlandi. Rússar byrjuðu náttúrlega tilburði sína í Úkraínu með því að taka Krímskaga 2014. Það var undir þeim formerkjum að það hefðu verið mistök á sínum tíma að afhenda þeim Krímskaga 1954. Nú er náttúrulega búin að bætast ofan á það orðræða um að Úkraína sé ólögmæt og sé í rauninni ekki þjóð. Viðurkenning á þeirra eigin sjálfsvitund, Úkraínumanna, að þessu leyti er því mjög mikilvæg.

Alþjóðasamfélagið hefur tekið þarna skýra afstöðu og þetta er árétting á afstöðu sem fulltrúar okkar Íslendinga hafa áður tekið á öðrum vettvangi. Samhengið er auðvitað alveg gríðarlega mikilvægt. Af hverju erum við að taka Úkraínu fyrir sérstaklega þegar það er ýmislegt annað sem væri hægt að álykta um sem tengist voðaverkum Sovétstjórnarinnar? Það er að sjálfsögðu vegna þess að þau standa núna í baráttu fyrir sinni tilvist. Nú erum við að horfa upp á það að stríðið þar hefur staðið yfir í ár.

Ég vil bara enn og aftur fagna þessu framtaki og ég lít á þetta sem mjög mikilvægan anga af því að standa með Úkraínu.