153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

hungursneyðin í Úkraínu.

581. mál
[16:17]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Mig langaði til að koma hingað upp og þakka hv. þingmönnum kærlega fyrir mjög góða og gagnlega umræðu og fyrir brýningu og hvatningu. Það er ljóst að hér ríkir breið og þverpólitísk samstaða um þetta mál. Ég tek undir orð hv. þm. Loga Einarssonar og vonast til að þetta mál verði samþykkt innan skamms, því að eins og hv. þingmaður nefnir réttilega er þetta einn angi af því að við höldum á lofti þessum samevrópsku og samvestrænu gildum, frelsi, mannréttindum og umburðarlyndi. Ég tek sömuleiðis undir orð hv. þm. Þórunnar Sveinbjarnardóttur varðandi það að við reynum að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig þó að útlitið sé e.t.v. ekki bjart í dag. Ég tek einnig undir orð hv. þm. Magnúsar Árna Skjöld Magnússonar varðandi það að það er á svona stundum sem manni finnst að virðing Alþingis rísi hvað hæst.