sjúkratryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir framsöguna. Eins og kom fram í máli hv. þingmanns þá er markmið 38. gr. laga um sjúkratryggingar fyrst og fremst að tryggja aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag sem er afar mikilvægt eins og ég held að við séum öll sammála um. En hins vegar hefur umrætt samningsleysi haft áhrif á kostnað við það að þiggja þjónustu sérfræðilækna. Í dágóðan tíma fylgdu margar ef ekki flestallar heilbrigðisstofnanir gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands en sérstakt komugjald og/eða álag var sett á þjónustukaupin í kjölfar hækkandi launa og efniskostnaðar. Þetta gerðu heilbrigðisstofnanir til að geta haldið áfram að veita nauðsynlega þjónustu svo að ekki kæmi hreinlega til lokunar. Ég held að það sé afar mikilvægt að við bregðumst við. Hvorki viljum við að það komi til lokunar í þessari heilbrigðisþjónustu og við höfum ekki aðgengi að þessari sérfræðiþjónustu né heldur viljum við að aukinn kostnaður, sem leggst eingöngu á sjúklinga í dag, leggist á þá.
Ég velti því hins vegar fyrir mér hvort setning gerðardóms sé vænleg til árangurs. Áhyggjurnar eru þær að tilkoma gerðardómsins, eins og lagt er til í þessu frumvarpi, muni jafnvel auka mönnunarvanda heilbrigðiskerfisins sem á undir högg að sækja, þ.e. að sérfræðilæknar ákveði hreinlega að leita annað í kjölfarið. Það tala fáir fyrir gerðardómi og hvað þá meðan samtal er í gangi á milli stjórnvalda og sérfræðilækna sem heilbrigðisráðherra hefur lagt mikla og ríka áherslu á og sagt vera eitt af sínum forgangsmálum.
Ég spyr því hv. þingmann: Telur hann að tilkoma gerðardóms gæti bætt núverandi stöðu þrátt fyrir lítinn vilja beggja aðila við samningaborðið og þá með hvaða hætti?