sjúkratryggingar.
Frú forseti. Ég held nú reyndar að það sem skipti máli í þessu sé, líkt og hv. þingmaður sagði, að ná samningum á milli ríkisins og sérfræðilækna. Ég held að þetta frumvarp, verði það samþykkt, muni ekki hafa afgerandi áhrif á heilbrigðisþjónustu úti um landið. Hv. þingmaður segir að það sé auðvitað von okkar allra að samningar náist en samningar hafa verið lausir í fjögur ár. Fjögur ár. Hvað vill hv. þingmaður bíða lengi? Hvað eiga þeir sem eru langveikir, sjúklingar í samfélaginu, þeir sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda, að borga marga milljarða á meðan úrræðaleysi ríkir í þessum mikilvæga hluta heilbrigðisþjónustunnar sem við höfum komið okkur upp hér á landi? Það eru auðvitað mörg álitamál um alls konar hluti en við eigum að hafa þann metnað og styrk að geta varið veikt fólk fyrir slíku ástandi sem nú ríkir. Ég á bara ekki nógu ljót og stór orð í minni orðabók til að lýsa þessu ástandi. Þetta er náttúrlega alveg sturlað, fyrir utan að hv. stjórnarþingmenn, hæstv. ríkisstjórn og hæstv. heilbrigðisráðherra skuli ekki setja niður fótinn og segja: Hingað og ekki lengra, og fara í leiðangur með okkur sem flytjum þetta frumvarp til að stöðva þessa óheillaþróun og verja veikt fólk fyrir óhóflegum reikningum.