sjúkratryggingar.
Frú forseti. Mig langar til að byrja á því að þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir þetta ágæta frumvarp og hennar meðflutningsfólki einnig. Ég veit svo sem að þetta er þingmannafrumvarp og því miður eru örlög þeirra flestra að þau fara ekki í gegnum þingið. En ég verð að segja að mér finnst málið sannarlega þannig vaxið að mikilvægt sé að það fái brautargengi í sölum Alþingis. Sá sem hér stendur á sér skrautlega fortíð, m.a. að hafa verið varaformaður Sjúkratrygginga Íslands á upphafsárum þeirrar stofnunar, 2008–2010, þannig að ég þekki ágætlega það erfiða jafnvægi sem sú stofnun þarf að feta þegar verið er að gera samninga við hinar ýmsu heilbrigðisstéttir og -stofnanir. Ég geri mér líka grein fyrir því að það kostar að reka heilbrigðiskerfi. Það er dýrt. Þetta er dýrt vinnuafl. Það eru dýr aðföng. Lyf geta verið óhemjudýr og meðferðir geta kostað óskaplega mikla fjármuni. Eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir hefur sagt hér í dag þá er þetta ófremdarástand. Við viljum ekki búa í samfélagi þar sem fólk þarf að neita sér um læknisþjónustu vegna þess að það hefur ekki efni á henni. Það þarf ekki einu sinni að fara svo langt að líta á þá sem minnst hafa á milli handanna. Það er fullt tilefni fyrir millitekjufólk til að neita sér um læknisþjónustu sökum kostnaðar eins og staðan er í dag.
Ég get nefnt dæmi af sjálfum mér. Ég er orðinn 54 ára gamall og var í heimsókn hjá heimilislækninum mínum um daginn og nefndi af því tilefni hvort það væri ekki ráð að fara í ristilspeglun og kanna hvort allt væri í lagi. Heimilislæknirinn tók vel í það og sendi mig eitthvert sem hún vissi að myndi virka og það var hringt í mig um kvöldið frá læknastofunni og við fundum okkur tíma. Svo les ég Facebook-færslu hjá einum vini mínum sem hafði farið í ristilspeglun nokkrum dögum fyrr hjá sömu stofu og ég var skráður í speglunina hjá. Hann hafði verið rukkaður um 50.000 kr. Á reikningnum var einmitt sundurgreindur sá kostnaður sem til hafði fallið vegna þess að það voru ekki til staðar samningar við þessa lækna sem voru að framkvæma speglunina og það var einhver upphæð. Hann spurði: Af hverju er það þessi upphæð? Af hverju var það ekki 150.000 kr. eða 1,5 milljónir? Þetta eru einhverjar tilviljunarkenndar upphæðir sem þessar stofur eða læknar setja sjálfir á þessa reikninga. En, eins og áður segir, auðvitað kostar að reka heilbrigðisþjónustu. Af mér er það að segja að ég hætti auðvitað við þessa ristilspeglun eins hratt og mögulegt var. Ég ætlaði að nota 50.000 kallinn minn í eitthvað annað. Það var kannski misráðið, það kemur í ljós. En þetta má ekki vera svona, þetta er ófremdarástand.
Mér finnst tillaga hv. þingmanns sem hér er til umræðu vera ákveðin lausn sem við ættum að geta unað við. Gerðardómur getur auðvitað tekið tillit til þess kostnaðar sem læknastofurnar bera og mun auðvitað gera það. En það þýðir að það er ríkið sem borgar fyrir okkur sem þurfum að nota þjónustuna. Það er þannig sem við viljum hafa það í norrænu velferðarkerfi. Ég get því ekki mælt nógsamlega með þessu frumvarpi og vona sannarlega, þó svo að það sé ekki lengur neinn hér inni í salnum frá þeim flokkum sem mynda hæstv. ríkisstjórn, að þetta frumvarp nái eyrum þeirra og hljóti náð fyrir augum Alþingis.