sjúkratryggingar.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. 8. þm. Suðurk., Oddnýju G. Harðardóttur, fyrir að fylgja þessu ágæta frumvarpi úr hlaði. Það er ekki ofsögum sagt að það er orðin bráð þörf á að binda á einhvern hátt enda á þetta ófremdarástand sem hefur ríkt um töluvert langt skeið í íslensku samfélagi og bitnar á öllum þeim sem eru sjúkir eða þurfa á einhvern hátt að leita til heilbrigðiskerfisins. Við skulum ekki gleyma því að fólk er ekkert að hlaupa til sérfræðilækna svona bara upp úr þurru. Þetta er fyrst og fremst ráð þegar heimilislæknir eða heilsugæsla hefur vísað fólki þangað vegna þess að það er faglegt mat þeirra að fólk þurfi á sérfræðilækningu að halda. Þegar fólkið síðan mætir á stofu hjá sérfræðilækni þá bíður þeirra kannski bara tilkynning upp á vegg um að nú sé búið að ákveða að komugjaldið verði þetta og þetta hátt. Það er ekkert hægt að fara að prútta um það á læknastofunni. Það er bara uppsett verð sem hver og einn verður að borga án tillits til efnahags og stöðu. Og auðvitað bitnar þetta mest á þeim sem hafa minnst á milli handanna og fólki sem er veikt og getur jafnvel vegna veikinda ekki aflað fjár sér til framfærslu að sama marki og aðrir. Ég vil þá sérstaklega benda á fólk í veikri stöðu eins og eldra fólk sem eðli málsins samkvæmt er auðvitað fólk sem mun að öllum líkindum þurfa á þessari aðstoð að halda sem sérfræðilæknar veita. En þegar kemur í biðstofuna verður mörgum hverft við og fallast hendur þegar þeir sjá að þeir þurfa að fara að borga einhverja tiltekna upphæð sem þeir áttu alls ekki von á að þeir yrðu rukkaðir um.
Ég vil minna á það að í gær gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands út mjög merkilegt rit á vef sínum sem hægt er að hlaða niður, þetta er 100 síðna rit, ákaflega vel skrifað með góðum útlistingum, sem heitir Réttarstaða eldra fólks. Með leyfi forseta, vil ég leyfa mér að vitna aðeins í þetta merka rit sem var að koma út og allir hafa aðgang að, þar er sagt m.a.:
„Samkvæmt 1. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, er markmið laganna að tryggja sjúkratryggðum aðstoð til verndar heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Lögin fjalla um sjúkratryggingar almannatrygginga, samninga um heilbrigðisþjónustu og endurgjald ríkisins fyrir heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisráðherra fer með yfirstjórn sjúkratrygginga og samningsgerð um heilbrigðisþjónustu og yfirstjórn sjúkratryggingastofnunar, sbr. 4. gr. laganna. Hlutverk sjúkratryggingastofnunar er skilgreint í 5. gr. laganna og er það m.a. að annast framkvæmd sjúkratrygginga og semja um og greiða endurgjald fyrir heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu eða sem samið hefur verið um. Stofnunin hefur einnig eftirlitshlutverk og hefur eftirlit með gæðum og árangri starfsemi þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt samningum.“
Það er alveg augljóst að þeim er ekki auðvelt um vik að fylgjast með málum þegar raunverulega er komin frjáls gjaldskrá sérfræðilækna á sjúklinga.
Ég ætla að vitna hér aftur í þetta merka rit sem Mannréttindaskrifstofa Íslands var að gefa út sem fjallar um réttarstöðu eldra fólks. Þar er vikið að rétti til heilbrigðisþjónustu, með leyfi forseta:
„Stundum er sagt að þá fyrst meti menn heilbrigði þegar þeir eru orðnir sjúkir. Góð heilsa er öllum mikilvæg og jafnframt er gott heilsufar almennt afar mikilvægt fyrir hagvöxt og þróun samfélagsins.
Heilbrigði einstaklingsins er einn mikilvægasti þáttur vellíðunar og virðingar hans. Af þeim sökum hefur heilsa eða heilbrigði verið talin til mannréttinda í hinum ýmsu lögum, reglum og samningum, bæði innlendum og alþjóðlegum. Þó nokkur fjöldi alþjóðasamninga hefur verið gerður þar sem fjallað hefur verið um réttinn til heilbrigðis sem mannréttindi. Í flestum þessara samninga eru lagðar ýmsar skyldur á hið opinbera til að tryggja þennan rétt. Vitaskuld geta ríki ekki tryggt mönnum heilbrigði eða góða heilsu en þau geta þó búið borgurunum ýmiss konar skilyrði og veitt góða þjónustu sem ætlað er að tryggja og bæta heilsufar þeirra.“
Þetta frumvarp sem liggur hér fyrir er einmitt gert í þessum sama tilgangi og hér um ræðir. Því er svo mikilvægt að frumvarpið fái framgang hér á þinginu og helst ekki seinna en í dag.
Mig langar að lokum að vitna enn einu sinni í þetta ágæta rit um eldra fólk og réttindi þeirra sem Mannréttindaskrifstofa Íslands var að gefa út í gær:
„Ríkisstjórnir bera ábyrgð á heilbrigði þjóða og verður sú ábyrgð aðeins öxluð með því að tryggja fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og félagsleg úrræði.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur fjallað um virka elli og bent á hversu víðfeðmt hugtakið er og hversu margir og ólíkir þættir koma við sögu. Hin virka elli hvar sem er í heiminum er að einhverju leyti ólík milli kynja og mótast af menningu í hverju samfélagi.
,,Heilbrigð elli er virk elli sem felur ekki aðeins í sér líkamlega færni heldur einnig þátttöku í samfélaginu, fjárhagslegt sjálfstæði, menningar- og trúarlega þátttöku og stjórnmálaleg áhrif“.
Aldraðir er sá hópur sem þarf einna mest á heilbrigðisþjónustu að halda og því er nauðsynlegt að tryggja öldruðum aðgang að heilbrigðisþjónustu án tillits til fjárhagslegrar getu eða annars konar mismununar. Heilbrigðiskerfið er því öldruðum sérstaklega mikilvægt einkum hvað varðar skipulag, útbreiðslu og þá þjónustu sem í boði er.“