stjórn fiskveiða.
Hæstv. forseti. Það er auðvitað þyngra en tárum taki hvernig kvótakerfið hefur leikið byggðirnar í kringum landið að mörgu leyti þar sem aflaheimildir hafa færst í síauknum mæli á færri og færri hendur og atvinnugrein, sem áður stóð undir blómlegri byggð víða um land, er nú á fallanda fæti í mörgum af þeim bæjum sem áður voru sannarlega sjávarútvegsbæir. Hv. flutningsmaður þessarar tillögu nefndi sinn heimabæ, Ólafsfjörð, og má telja marga aðra bæi sem hafa háð alvarlega varnarbaráttu í kjölfar þessarar samþjöppunar aflaheimilda á hendur fárra.
Það verður auðvitað áfram viðfangsefni þessarar samkundu hér að reyna að finna jafnvægi í því að sækja í auðlindina okkar á sjálfbæran hátt og það að sjávarútvegurinn í kringum landið geti áfram verið sú arðbæra atvinnugrein sem hann vissulega er. En það er ekki síður mikilvægt að taka það fram að það er nauðsynlegt að sú atvinnugrein taki meiri þátt í því að borga fyrir samneysluna hér á þessu landi. Þar höfum við horft á hærri veiðigjöld en nú eru lögð á þessa atvinnugrein og að það sé sjálfsagt mál að þeir sem fá aðgang að sameiginlegum auðlindum okkar allra greiði fyrir það sanngjarnt gjald.