stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Magnúsi Árna Skjöld Magnússyni fyrir síðara andsvar. Ég er eiginlega komin með það á tilfinninguna að hann sé bara alveg að koma í Flokk fólksins. Það er bara þannig. Við erum bara svo tilbúin til að vera sammála.
Þegar við lítum á stórútgerðina, hvernig er í rauninni búið að fara með heimildirnar, aflaheimildirnar sem áttu að verða eftir í byggðarlögunum — það hefur ekki verið heykst við að hreinlega þurrka þær burt og skilja sveitarfélögin eftir í sárum. Þá verðum við auðvitað að gera eitthvað til þess að styrkja búsetu og efla búsetuskilyrði í þessum sjávarplássum. Þetta er lítið skref í þá átt, það frumvarp sem ég hef verið að mæla hér fyrir í dag, en það er eitt af mörgum sem Flokkur fólksins er að koma með og er búinn að mæla fyrir og á eftir að mæla fyrir fleirum. Við skulum sjá hvernig tekst til. Ég bind enn vonir við hæstv. ráðherra sjávarútvegsmála og ég mun seint trúa því ef þau í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði ætla ekki að taka utan um brothættar sjávarbyggðir hringinn í kringum landið, seint mun ég trúa því. Það mun bara verða mér virkilega erfitt ef ég þarf að horfast í augu við slíkt.