153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

25. mál
[19:01]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka flutningsmanni þessarar tillögu, hv. þm. Jóhanni Friðrik Friðrikssyni, fyrir hana. Það er í rauninni furðulegt að það skuli ekki vera svona lýðheilsumat til staðar nú þegar, því að það er auðvitað svo margt sem stjórnvöld gera sem hefur bein áhrif á heilsu þjóðarinnar eða getur haft það. Eins og hv. þingmaður orðaði ágætlega áðan þá skiptir auðvitað heilsan öllu máli, ef hana vantar þá er ekkert annað sem skiptir máli. Nú er það líka svo að við erum stöðugt að verða eldri og við sem betur fer höldum heilsu lengur og lengur en það setur auðvitað nýjar byrðar á samfélagið að sinna okkur. Eins og hefur komið fram í umræðu fyrr í dag þá er heilbrigðiskerfið dýrt og það er dýrt að þurfa að sinna fólki þegar það er orðið veikt og þess vegna er gráupplagt að reyna að tryggja að samfélagið sé með þeim hætti að færri verði veikir heldur en fleiri. Og það sem er ekki mælt er ekki gert þannig að það er borðliggjandi að meta lýðheilsu með þeim hætti sem hér er lagt til. Ég geri mér auðvitað vonir um það, þegar maður sér úr hvaða ranni þetta frumvarp er runnið, að eitthvað slíkt sé á döfinni og verði að veruleika fyrr en síðar.