153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

25. mál
[19:03]
Horfa

Flm. (Jóhann Friðrik Friðriksson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég get sagt að ég er algerlega sammála honum og vil nefna m.a. þá staðreynd að fjármagn til forvarna hér á Íslandi er undir því sem gerist hjá nágrannaríkjum sem við viljum bera okkur saman við. Ég held að þar getum við gert mun betur. Ég vil líka taka undir það að lýðheilsumat er mjög mikilvægt og það má eiginlega segja út frá þeirri umræðu sem hefur verið um lýðheilsu á undanförnum árum, kannski tíu, fimmtán árum, og orðum þeirra ráðherra sem hafa setið í stóli heilbrigðisráðherra á þeim tíma að það hefur sannarlega verið breið samstaða um að við þurfum að gera mun betur í þessum málaflokki. Ég held að undanfarnir þrír, ef ekki fjórir heilbrigðisráðherrar hafi allir nefnt mikilvægi lýðheilsumats. Þessi þingsályktunartillaga er sannarlega partur í því að þrýsta á að svo verði, festa það í sessi, og vænti ég þess að núna loksins finnum við leiðir sem eru skilvirkar. Þess vegna fannst mér og fleirum ekki kannski tilefni til að fara að leggja beint til í þessari tillögu hvernig það yrði gert heldur láta okkar helstu sérfræðinga og fræðasamfélag ásamt embætti landlæknis og fleiri aðilum leggjast yfir það hvernig það getur best nýst okkur. Við viljum auðvitað að matið sé þannig úr garði gert að upplýsingarnar séu áreiðanlegar svo við getum tekið betri afstöðu og ákvarðanir í kjölfarið.