153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

25. mál
[19:05]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég vil bara halda áfram að taka undir þetta. Mér heyrist að sú leið sem hv. þingmaður leggur til í þessu ferli sé skynsamleg, að fá okkar færasta fólk í þessum efnum til að útfæra hvernig þetta verði gert, og það bendir allt til þess að þetta geti orðið til mikilla heilla fyrir land og þjóð.