innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans tón og stuðning við tillöguna. Mig langar að nýta tækifærið og nefna það að hér á Alþingi eru auðvitað ákveðin mál sem hafa kannski verið umdeildari en önnur þegar kemur að lýðheilsu og forvörnum og ég held að það sé mikilvægt að bæði þingmenn og þjóðin átti sig á því að hér er verið að tala um lýðheilsumat á mun fleiri þáttum heldur en t.d. neysluháttum. Hér eru undir samgöngumál, umhverfismál og allir þeir þættir sem geta haft áhrif á heilsu okkar, ekki bara á neikvæðan hátt heldur líka á jákvæðan. Og skyldi það vera á neikvæðan hátt þá myndi koma fram í slíku lýðheilsumati hvernig væri hægt að mæta neikvæðum áhrifum með mótvægisaðgerðum. Ég held að það sé mjög mikilvægt. Og ég segi það bara fyrir mig sem þingmann, frú forseti, að ég held að meiri og betri upplýsingar hljóti að vera af hinu góða, hver sem svo pólitíska ákvörðunin kann að vera. Þess vegna er lögð áhersla á það í þessari umræðu, og ég hef heyrt það líka úti í samfélaginu, að þetta snýst ekki til að mynda um forræðishyggju. Þetta snýst um upplýsingu og það er stór munur á. Þess vegna fagnaði ég því sérstaklega hversu margir þingmenn voru tilbúnir til að vera á þingsályktunartillögunni og eru í þessari vegferð með okkur og ég vænti þess að það bætist vel í hópinn þegar við förum að ræða málið í nefnd og svo væntanlega í þingsal og vonandi verður tillagan samþykkt sem fyrst.