153. löggjafarþing — 68. fundur, 23. feb. 2023.
hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu.
Á morgun er ár liðið frá því að innrásarstríð Rússa í Úkraínu hófst, stríð sem enn stendur og sér ekki fyrir endann á, stríð sem hefur falið í sér ómældar hörmungar fyrir úkraínsku þjóðina.
Af því tilefni hefur hæstv. forsætisráðherra óskað eftir því að flytja sérstaka yfirlýsingu í samræmi við 61. gr. þingskapa. Fulltrúar annarra þingflokka fá svo tækifæri til að bregðast við yfirlýsingunni.