hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu.
Herra forseti. Tilefni þessarar umræðu er auðvitað hörmulegt eins og hæstv. forsætisráðherra nefndi, ár frá svívirðilegri innrás rússneskra stjórnvalda í Úkraínu, frjálst og fullvalda Evrópuríki. Ef tilgangurinn var að beygja úkraínsku þjóðinni og skapa sundrungu meðal vestrænna ríkja þá tókst það a.m.k. ekki. Í dag standa Vesturlönd sterkari en Rússland einangraðra og veikara. Það breytir þó ekki þeirri hryllilegu mynd að milljónir íbúa Úkraínu hafa ýmist verið drepnar, sviptar heimilum sínum eða stökkt á flótta frá heimkynnum sínum og daglega berast okkur nýjar fréttir af grimmdarverkum, hvort sem um er að ræða gagnvart fólki eða mikilvægum innviðum landsins. En þótt hörmungar úkraínsku þjóðarinnar séu auðvitað öllum langefst í huga er mikilvægt að muna að þetta árásarstríð Rússa beinist að fleiru. Það þarf nefnilega ekki að grafa langt í ræðuna sem Pútín hélt nýlega af þessu sama tilefni til að átta sig á því. Fyrir utan þá brenglun á raunveruleikanum sem hann varpar upp í tilraun sinni til að sannfæra rússnesku þjóðina um að Rússar séu hið eina sanna fórnarlamb og ábyrgð á stríðinu liggi hjá Vesturlöndum, þá ræðst hann harkalega að þeim gildum sem flest Vesturlönd og við Íslendingar viljum standa vörð um; lýðræði, frelsi, jafnrétti og umburðarlyndi.
Það er vissulega gleðilegt að sjá hve samstiga Evrópa og bandalagsþjóðir okkar hafa verið allt síðasta ár í aðgerðum gegn Rússum og aðstoð við Úkraínu. Það er mikilvægt að þessi skýra samstaða haldist þótt stríðið muni dragast á langinn. Alþingi Íslendinga hefur talað einni röddu í málinu og við Íslendingar höfum lagt af mörkum með þátttöku t.d. í efnahagsþvingunum, mannúðarhjálp og móttöku flóttamanna. Það munum við gera áfram.
En við megum ekki loka augunum fyrir því að stríðið hefur breytt heimsmynd okkar og sú mynd sem er að teiknast upp krefst þess að við förum vel yfir öryggi og hagsmuni okkar og hvernig þeim er best borgið í framtíðinni. Liður í því er að sjálfsögðu að endurskoða þjóðaröryggisstefnuna sem er á lokametrunum hér á þinginu, en við þurfum líka að endurhugsa samstarf okkar við umheiminn. Fyrir örþjóð sem á allt undir því að sjálfstæði og fullveldi ríkja sé virt hlýtur að blasa við að það gerum við best með enn frekara fjölþjóðlegu samstarfi við þjóðir og ríkjasambönd sem deila okkar megingildum.