hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu.
Virðulegur forseti. Á morgun verður liðið ár frá innrás Rússa í Úkraínu. Innrásin er einn mesti harmleikur sem hefur átt sér stað í Evrópu frá síðari heimsstyrjöld. Í upphafi töldu margir að innrásarliðið myndi ná tilsettu marki innan fáeinna vikna en úkraínska þjóðin tók hetjulega til varna og kom í veg fyrir að rússneski herinn næði yfirráðum yfir höfuðborginni Kiev. Talið er að yfir átta milljónir manna hafi flúið land og aðrar fimm milljónir séu á flótta innan Úkraínu, fyrir utan alla þá sem Rússar hafa tekið yfir til Rússlands, þar af fjölda barna. Þá hafa Rússar framið stríðsglæpi á svæðum eins og í Bucha, þar sem framin voru fjöldamorð á óbreyttum borgurum, og Zaporizhzhia þar sem sprengjum var varpað á lestarstöð. Talið er að milli 200–300 þúsund hermenn hafi látið lífið í átökunum, fyrir utan alla almenna borgara. Rússar hafa gripið til ýmissa örþrifaráða til að manna hersveitir sínar, m.a. með herkvaðningu almennra borgara og herkvaðningu í fangelsum landsins.
Vólódímír Zelenskí, forseti Úkraínu, hefur staðið sig hetjulega í baráttunni og óumdeilt að forysta hans hefur skipt miklu fyrir úkraínsku þjóðina. Stríðið í Úkraínu hefur afleiðingar um víða veröld. Í Úkraínu eru framleidd mikil matvæli og hætta á matvælaskorti hefur því aukist gríðarlega síðan innrásin hófst. Sameinuðu þjóðirnar og Tyrkland hafa unnið þrekvirki síðasta sumar þar sem samkomulag náðist um kornflutning yfir Svartahaf. Vegna samkomulagsins hefur tekist að flytja yfir 18 milljón tonn af matvælum úr höfnum Úkraínu en 65% af öllu hveiti og 48% af öllum maís fór þaðan til þróunarríkjanna.
Ísland hefur ásamt flestum ríkjum stutt Úkraínumenn og fordæmt innrás Rússa. Okkar stuðningur felst í því að senda birgðir og nauðsynjar og taka á móti flóttafólki. Það er sorglegt að enn í dag þurfi fullvalda ríki að óttast innrás frá nágrönnum sínum að ósekju. Innrás Rússa er brot á alþjóðalögum auk þess sem þeir hafa framið ótal ódæði með framferði sínu. Stríðið bitnar verst á veiku fólki, fötluðu fólki, öldruðu fólki og börnum. Miðað við það sem við höfum heyrt og séð af framferði Rússa í Úkraínu þá segi ég að það er óásættanlegt að hér á Íslandi starfi fulltrúi rússneskra stjórnvalda í fullu starfi við að verja þessa innrás og stunda áróður fyrir Vladímír Pútín. Við eigum að ganga lengra í fordæmingu okkar og slíta stjórnmálasambandi við Rússland og það strax í dag.