153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu.

[10:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Nú er rétt ár liðið síðan Rússar höfðu kurteislega beðið þar til vetrarólympíuleikarnir í Kína kláruðust og ruddust þá inn í nágrannaríki sitt, Úkraínu. Hugrekki úkraínsku þjóðarinnar er aðdáunarvert, eins og blasir við öllum og blæs okkur, hinum friðelskandi þjóðum, von í hjarta, en aflið sem þar er við að etja er auðvitað gríðarlegt. Við verðum með bandalagsþjóðum okkar að styðja áfram við úkraínsku þjóðina eins og mest við megum og leggja það af mörkum sem við getum og ráðum við.

Það hefur þótt nokkur værukærð alltumlykjandi í alþjóðamálum og varnarmálum undanfarin ár sem segja má að menn hafi vaknað af værum blundi gagnvart fyrir réttu ári síðan. Ég held að hér heima fyrir þurfum við að leggja meiri áherslu á að sinna þeim málum með þeim hætti sem mikilvægið kallar á og ég hvet hæstv. utanríkisráðherra til að hafa það í forgrunni í störfum sínum á næstunni. Þetta hefur sömuleiðis dregið fram mikilvægi NATO. Við auðvitað styðjum áfram við þær tvær vinaþjóðir okkar sem nú sækja þar um inngöngu þó að nokkuð hafi hökt vegna sjónarmiða Tyrkja í því samhengi.

Það er tvennt sem þetta stríð hefur líka minnt okkur á sem hefði átt að vera okkur mun augljósara árum saman hér heima en raunin hefur verið. Annars vegar er það fæðuöryggi og hins vegar er það orkuöryggi. Ég skora á okkur sem hér erum, um leið og við styðjum við það að leggja það af mörkum sem við getum til að styðja við úkraínsku þjóðina, að við höfum þessa tvo málaflokka í algjörum forgrunni í því sem við tökumst á við næstu misserin, því að ekki veitir af. Ég bara ítreka: Gerum það sem við getum, leggjum það af mörkum til að styðja við úkraínsku þjóðina á þeim tímum sem nú ganga yfir. Þó að við séum lítil þá erum við nú býsna öflug þegar við tökum okkur til. Ég hvet okkur öll til samstöðu í þeim efnum.