153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

loftslagsgjöld á flug.

[11:25]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið þó að mér þyki kannski sjálfri spurningunni ekki hafa verið svarað nægjanlega. Ég vildi draga hér fram, með aðstoð hæstv. ráðherra, hver árangurinn hefði verið hingað til af þessum umleitunum gagnvart starfsbræðrum og -systrum hæstv. ráðherra og embættismönnum gagnvart sínum kollegum. Samkvæmt því sem nú liggur fyrir virðist hann ekki hafa verið mikill, ég ætla ekki að segja að hann hafi ekki verið neinn. Þetta er gríðarlegt hagsmunamál sem fyrir liggur. Ef þetta skilar sér þannig til sameiginlegu EES-nefndarinnar að regluverkið verði innleitt, eins og lagt var upp með í fréttatilkynningu Evrópusambandsins frá 9. desember síðastliðnum, mun hæstv. ráðherra beita sér fyrir því að innleiðingunni verði hafnað?