153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

loftslagsgjöld á flug.

[11:27]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Nei, það er ekki þannig að það hafi ekki neinn árangur orðið vegna þess að þetta voru fjölmörg atriði. Tvö þeirra stóðu kannski hvað verst út af, strax í ferlinu tókst okkur að leiðbeina í einu málinu inn á rétta braut og því hefur það ekki áhrif á Ísland. En varðandi þennan þátt sem er hér til umfjöllunar þá tókst okkur ekki að snúa umhverfishluta Evrópusambandsins, þó svo að allir samgönguráðherrar og þeir sem ég ræddi við, líka hjá Evrópusambandinu, skildu málið til hlítar og sáu öll vandkvæði á því að þetta myndi skila nokkru, yrði jafnvel verra. Því er ég fullviss um að við munum ná einhverjum árangri í þessu. Við munum nota öll þau ráð sem þarf til að koma í veg fyrir að þetta gangi að óbreyttu yfir Ísland eins og það lítur út. Það er ekki útséð um það og við munum bara halda áfram að tala máli okkar og verja okkar hagsmuni.