aðgerðir í geðheilbrigðismálum.
Herra forseti. Við uppbyggingu nýs Landspítala, sem við flest ef ekki öll fögnum, var ekki gert ráð fyrir húsnæði fyrir geðdeild né þjónustu sem varðar geðheilbrigði. Ég þarf ekki að ítreka mikilvægi þess að veita fullnægjandi og viðunandi geðheilbrigðisþjónustu líkt og ég hef gert áður uppi í pontu heldur vil ég benda á það sem er ábótavant í kerfinu okkar og það sem við getum gert betur. Innviðir geðdeildarinnar á Hringbraut þarfnast bráðnauðsynlegra umbóta. Húsnæðiskosturinn er ekki aðeins óviðunandi heldur hefur sameining deilda fækkað leguplássum, bæði þar og á Kleppi. Bráðamóttaka geðsviðs er ekki opin allan sólarhringinn heldur er almennur skrifstofuopnunartími. Svo þegar það lokar á geðdeildinni þarf fólk að leita til bráðamóttöku sem er eins og allir vita að glíma við mjög mikið plássleysi og fráflæðisvanda.
Vandamálið er ekki þjónustan sem er veitt heldur er starfsfólkið þvert á móti að gera það besta sem það getur með það sem það hefur fengið til að moða úr. En það er bara ekki nógu gott. Eins er skortur á starfsfólki og oftar en ekki fær fólk ekki þann stuðning sem það leitar eftir í innlögn. Enn og aftur: Starfsemin er mikilvæg og það eru allir að reyna sitt besta en þegar það er skortur á starfsfólki er skortur á samkenndarmiðaðri nálgun á geðræn vandamál. Sögur hafa borist um það að sumu veiku fólki sé ekki hleypt út til að reykja fyrr en þau klára matinn sinn, sem ég geri alvarlega athugasemd við. Refsimiðuð nálgun í stað hvetjandi nálgunar skilar sér alls ekki í veikindum.
Ég ætla bara að einfalda þetta og segja að það sé bráðnauðsynlegt að gera miklar umbætur á innviðum fyrir geðsvið spítalans. Mig langar því að spyrja: Hefur hæstv. ráðherra einhver áform um að útvega nýtt húsnæði fyrir nýja geðdeild? Er það eitthvað í kortunum? Eða gleymdist bara algjörlega að gera ráð fyrir í geðheilbrigðismálum í þeirri endurskoðun sem á sér stað í heilbrigðiskerfinu og í uppbyggingu nýs Landspítala?