153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

starfsemi stjórnmálasamtaka.

38. mál
[15:18]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og fyrir mjög athyglisverða og góða punkta. Varðandi aðferðafræðina þá getum við alveg verið sammála um að það er um margt að hugsa. Eins og kemur fram í greinargerð með þessu frumvarpi var upphaflega hugsunin sú hjá mér að leggjast í þessa vegferð til að afnema hreinlega þetta kerfi. En þegar betur var að gáð þá þóttu ekki nógu góð eða sterk rök til þess, a.m.k. ekki að sinni. En markmiðið er a.m.k. viðleitni. Þó að þetta sé bara dropi í hafið er þetta viðleitni til þess að taka, þótt ekki sé nema hænuskref í þá átt að draga úr þessum fjáraustri og þar finnst mér t.d. mikilvægt að afnema þessi beinu framlög til kosningabaráttu sem mér þykja hreinlega vera fráleit.

Síðan varðandi hækkun úr 2,5% í 4% þá eru það lýðræðissjónarmið sem búa þar að baki sem mér þykja mjög mikilvæg eftir að hafa verið mjög hugsi yfir þeirri þróun að fólk geti í rauninni hreinlega farið í framboð í fjáröflunarskyni. Ég held að það sé fullt tilefni til að fara í heildarendurskoðun og hugsa aðeins um það á hvaða vegferð við erum varðandi þetta fyrirkomulag. Hins vegar hef ég ekki skynjað mikinn áhuga frá stjórnmálamönnum á endurskoðun á þessu kerfi enda er bara svo ofboðslega hlýtt og gott í faðmi hins opinbera.