153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

starfsemi stjórnmálasamtaka.

38. mál
[15:24]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þá umræðu sem hér er að eiga sér stað. Ég held að hún sé bara af hinu góða og sé gagnleg. Þó að ég sé ekki í grunninn endilega sammála innihaldi þessa frumvarps þá held ég að það sé bara gott fyrir okkur að taka umræðu um það með hvaða hætti við ætlum að fjármagna lýðræðislega umræðu af því að ég lít þannig á að lýðræðið kostar. Það væri kannski ágætt og hagkvæmt að hafa þetta bara eins og í Bandaríkjunum, það væru bara tveir flokkar sem réðu þessu. Þeir hafa svo sem í gegnum tíðina náð að fjármagna sig með því að leita til fyrirtækja sem hafa fjármagnað umræðu í Bandaríkjunum, held ég bara að öllu leyti. En hér er verið að horfa á þetta á annan hátt. Hér er litið þannig á að við eigum ekki sem pólitískt kjörnir fulltrúar að vera of háð einhverjum úti í samfélaginu, of háð hagsmunaaðilum. Við erum oft og tíðum að fjalla um hagsmunaaðila og breyta þeirra umhverfi, jafnvel á þann hátt að hagur þeirra gæti hugsanlega versnað. Ég held að það hafi verið tilgangurinn þegar verið var að breyta þessum lögum, að gera stjórnmálaöfl og stjórnmálafólk ekki jafn háð þeim sem greiða til flokkanna. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það geti ekki verið falin í því hætta að það sé verið að hækka þessa styrki sem má leita til fyrirtækja með eins mikið og raunin er samkvæmt þessari tillögu.