153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

starfsemi stjórnmálasamtaka.

38. mál
[16:00]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er pínulítið hugsi yfir þessu frumvarpi. Ég held að það gleymist stundum að það þarf visst fjármagn til þess að geta rekið stjórnmálaflokk eða frjáls félagasamtök eða hvað sem er á einhverjum grunni og við erum ekki nema 360.000 í þessu landi. Eins og hv. þm. Magnús Árni Skjöld Magnússon nefndi áðan er kannski bara viss prósenta af fólki sem hefur áhuga á því að styðja eitthvað og veltir því fyrir sér, þó að það styðji eitthvað, að það þurfi að koma við budduna hjá því o.s.frv. Þetta eru bara staðreyndir.

Mig langar aðeins til að vísa til reynslu minnar af því að reka óhagnaðardrifin sjálfboðaliðasamtök frá því 2017. Í þessum samtökum eru 8.300 fjölskyldur, má segja, skráðar. Fyrir nokkrum árum, ég er ekki búin að kíkja á þær upplýsingar aftur, skoðaði ég hvaða óhagnaðardrifin samtök væru stór t.d. í Ameríku. Ég fann engin óhagnaðardrifin samtök sem voru yfir þrjár milljónir á þeim tíma. Það getur verið að þau séu einhver til en ég fann þau ekki. Svo skoðaði ég betur og ég fann samtök eins og Amnesty International sem hafa á heimsvísu 7,7 milljónir, ef ég man rétt, 7 komma eitthvað milljónir á þeim tíma. Miðað við þetta eru Hagsmunasamtök heimilanna með stærstu óhagnaðardrifnu samtökum í heimi miðað við höfðatölu og við erum rekin á félagsgjöldum sem eru valfrjáls. Þegar meira var í gangi á sínum tíma og kannski meiri hasar í baráttunni þá voru kannski fleiri sem studdu samtökin, en engu að síður byggja hagsmunasamtökin á fólki sem hefur ekkert mjög mikið milli handanna. Það eru núna kannski rúmlega 20% félagsmanna sem alltaf borga félagsgjöldin. Allir fá samt þjónustu ef þeir þurfa hana.

Ef ég væri að reka þessi samtök úti í Ameríku, mjög gott að miða við Ameríku, þúsund sinnum fleiri en við, þá væru þarna 8,3 milljónir og það væru u.þ.b. 2 milljónir sem borguðu félagsgjöldin og ég væri að reka alveg hörkusamtök með skrifstofu, fullt af fólki í vinnu o.s.frv. Þetta virkar bara ekki svona á Íslandi. Við verðum að horfast í augu við það, þótt ekki sé nema út af því hversu fá við erum — það hljómar rosalega vel að þessa starfsemi eigi bara að reka með frjálsum framlögum og þeir sem vilja vera með eigi að borga o.s.frv., en það er ekkert endilega að gerast. Svo má alveg velta fyrir sér hvað gerist þegar þrengir að. Þá er t.d. það fyrsta sem dettur út hjá fólki að styrkja eitthvað svona. Og hvað gerist ef samtökin eru nú ekki alveg að fylgja því sem ég akkúrat vil á þeirri stundu? Þá dettur eitthvað út. Það er kannski allt í lagi, það er bara val fólks.

En þá komum við aftur að því og mig langar að taka undir það sem hv. þm. Guðbrandur Einarsson sagði áðan: Lýðræðið kostar. Við þurfum litla flokka. Með fullri virðingu, það væri ekki gæfulegt ef hérna væru bara Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn af því að engir aðrir næðu inn. Það er staðreynd að það er mjög auðvelt eða miklu auðveldara fyrir hv. þingmann flokks eins og Sjálfstæðisflokksins, sem er mjög rótgróinn, á eignir og er með gríðarlegt áratuga forskot í að byggja upp alls kyns starf úti um allt land, að koma fram með svona frumvarp eða þann flokk að koma fram með svona frumvarp heldur en flokk sem er enn þá að byggja sig upp. Og við þurfum nýja flokka líka. Við þurfum á því að halda að það sé hægt að byggja upp flokka. Ég get t.d. nefnt það að Flokkur fólksins kom engum inn á þing í fyrstu kosningum, en hann gat byggt sig upp. Og ég held, alveg sama hvort fólk er sammála okkur, að það væri sjónarsviptir að okkur ef við værum ekki hérna. Ég held að við skiptum máli í lýðræðislegri umræðu. Þannig að ég get ekki samþykkt þetta og eins og ég segi: Hvað erum við að eyða í? Ég held að það sé ýmislegt sem við ættum fyrst að hætta að gera áður en við hættum að gera þetta. Frægi ráðherrakapallinn, hvað kostaði hann? Það eru alls konar staðir þar sem hægt er að spara. Við eigum ekki að spara í lýðræðinu.

Ég get líka sagt að í þeim samtökum sem ég hef rekið þar var ég í sjálfboðavinnu öll þessi ár og er enn þá í sjálfboðavinnu þar, en áður en ég kom á þing þá var ég í fullu starfi sem kennari. Þetta er gríðarlega slítandi líka, þetta er svakalega slítandi að gera svona í langan tíma. Þetta eru hlutir sem við þurfum að hugsa um í samhengi við fólksfjöldann hérna. Það er ekki raunhæft, hvorki fyrir stjórnmálasamtök né félagasamtök í rauninni, að segja: Við getum þetta af því við erum í sjálfboðastarfi. Þá er þetta hægt og af því að við förum rosalega vel með þá er þetta hægt. Ég er ekki viss um að stjórnmálaflokkar, þeir sem núna sitja t.d. á þingi, hefðu sætt sig við að vinna launalaust kannski svo árum skiptir í mikilli vinnu til þess að uppskera hugsanlega einhvern tímann að fara inn á þing. Ég held að við þurfum að skoða þetta út frá þessu.