starfsemi stjórnmálasamtaka.
Virðulegi forseti. Já, það má örugglega ræða kosti og galla. Hv. þingmaður segir að þetta virkaði á sínum tíma. Það er alveg rétt, en félagshugsunin var allt önnur hérna bara fyrir örfáum áratugum en raunin er í dag. Ég get vitnað til þess að faðir minn hefur starfað í knattspyrnufélagi frá því að ég man eftir mér, verið formaður, gjaldkeri og ég man ekki hvað annað og m.a. hjá KSÍ, allt í sjálfboðaliðastarfi, allt saman, alltaf. Þarna voru menn sem gerðu allt sem þurfti að gera. Ég man að það var grafinn upp og búinn til grasvöllur og þarna stóðu stjórnarmenn og mokuðu daginn út og daginn inn, eftir vinnu fóru þeir og mokuðu upp völlinn, svo var hann tyrfður og allt þetta. Ég held ekki að við myndum sjá svona í dag. Þetta er bara ekki hugsunin í dag. Við erum komin á annan stað hvað þetta varðar. Ég tel að það sé slæmt vegna þess að ég tel að við þurfum meira af þessu, við eigum að geta gefið meira af okkur án þess endilega að þurfa að fá eitthvað fyrir það, hvort sem það er nákvæmlega fyrir eigin hag eða í beinhörðum peningum eða eitthvað þess háttar. En það breytir því ekki að það er mjög erfitt að fá fólk til sjálfboðaliðastarfa í dag nema það hafi hreinlega beinan hag af því á einhvern hátt, er t.d. að safna fyrir sinni eigin ferð eða gera eitthvað þess háttar. Þetta er breyting sem hefur orðið í þjóðfélaginu. Ég get vitnað í ömmu mína líka sem var í sjálfboðastarfi, var í stjórnum og ég veit ekki hverju úti um allt og ekki króna fyrir. Þetta eru hlutir sem við erum að sjá breytast. Og svo ég nefni — nei, ég held að ég láti þetta duga í bili.