starfsemi stjórnmálasamtaka.
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir margt af því sem hv. þingmaður segir en ég vil samt, svona sem manneskja sem starfaði m.a. í 15 ár í sjálfboðastarfi í stjórnmálaflokki, stjórnmálaflokknum mínum, reyna að halda í trúna á grasrótarstarfið í stjórnmálaflokkum. Ég hef áhyggjur af svona slævandi áhrifum hárra opinberra framlaga. Við getum t.d. litið til íþróttahreyfingarinnar, þar hefur nú sjálfboðavinna, held ég, frekar eflst ef eitthvað er. Kannski er það vegna þess að íþróttafélögin hafa verið styrkt svo um munar og þau studd af því að hið opinbera hefur séð ávinninginn af því, en íþróttafélögin hafa líka verið dugleg að teygja sig til fólks. Það mættu stjórnmálaflokkar vera enn duglegri við að gera og ég vonast til þess að það sitji a.m.k. eftir eftir þessa umræðu.