153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[16:14]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Herra forseti. Við ræddum hér í fyrradag undir þessum lið um birtingu lögfræðiálita sem fjalla um mögulega birtingu á greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol. Nú hefur mér borist til eyrna að hæstv. forseti hafi þegar tekið afstöðu til slíkrar birtingar eftir að óbreyttur borgari óskaði eftir aðgangi að lögfræðiálitinu á grundvelli upplýsingalaga. Alþingi mun hafa synjað um aðgang að þessum gögnum á grundvelli 3. töluliðar 6. gr. upplýsingalaga þar sem segir að upplýsingarétturinn taki ekki til bréfaskipta við sérfróða aðila í tengslum við réttarágreining eða til afnota í dómsmáli. En ef við skoðum lögskýringargögnin á bak við ákvæðið kemur þar skýrt fram að þessi undantekningarregla tekur ekki til álitsgerða eða skýrslna sérfræðinga sem aflað er við meðferð stjórnsýslumála almennt. Ég vil spyrja hæstv. forseta: Er það rétt að hér sé verið að halda þessum lögfræðiálitum frá almenningi á þessum hæpna lagagrundvelli? Og til hvers eiginlega? Hvað er svona hættulegt við það að almenningur fái að sjá ekki bara þessa greinargerð heldur lögfræðiálit um það hvort það megi hugsanlega birta greinargerð? (Forseti hringir.) Hvers vegna er gengið svo gríðarlega langt hér í leyndarhyggjunni þegar kemur að (Forseti hringir.) upplýsingum um ráðstöfun þessara stöðugleikaeigna sem hlaupa á hundruðum milljarða?