153. löggjafarþing — 68. fundur, 23. feb. 2023.
greinargerð um sölu Lindarhvols.
Forseti þyrfti nú að rifja upp hvernig háttað var í þessu máli. Það hafa alls konar ákvarðanir verið teknar í þessum efnum á þeim langa ferli sem málið hefur fengið, bæði hér á þessu kjörtímabili og á því síðasta, þannig að forseti hyggst ekki bregðast við þessu. En eins og forseti gat um í fyrradag þá ætlaði forseti að fara yfir þetta og það verður að sjálfsögðu rætt á vettvangi forsætisnefndar þegar hún kemur næst saman.