153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

aðgerðir gegn kynferðisbrotum og aukinn stuðningur við þolendur þeirra.

39. mál
[16:25]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Rétt eins og þegar málið var flutt á síðasta þingi þá vildi ég koma hingað upp og lýsa yfir stuðningi við það eins og margir þingmenn hafa gert. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og það er rétt sem hér kom fram hjá flutningsmanni að fjármagn hefur sannarlega verið aukið en við þurfum að gera meira. Í því sambandi þá er það allt of algengt í íslensku samfélagi að við þekkjum til fólks sem hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi og það er þyngra en tárum taki að sjá hversu erfitt getur verið fyrir fólk að leita réttar síns. Við erum alltaf að reyna að gera betur og fram kemur m.a. í nýlegri GREVIO-skýrslu þar sem gerð er úttekt á þessum málum, m.a. hér á landi, að þó að við séum að gera margt ágætlega þá þurfum við svo sannarlega að bregðast enn betur við. Í þessu sambandi langar mig aðeins að nefna forvarnirnar. Ég held að það skipti mjög miklu máli að við tökum þær líka til greina og veltum fyrir okkur hvernig við getum aukið þær á þann hátt að við stoppum framferði sem þetta áður en það á sér stað. En að því sögðu er alveg gríðarlega mikilvægt að við veitum allan þann stuðning sem við mögulega getum veitt og aðlögum okkar lög og löggjöf að því að bæta ferlið á allan hátt. Þess vegna langar mig að spyrja flutningsmann aðeins út í forvarnaþáttinn, hvort við getum ekki verið sammála um að við þurfum að gera meira þar ásamt öllu öðru sem málið tekur til.