aðgerðir gegn kynferðisbrotum og aukinn stuðningur við þolendur þeirra.
Frú forseti. Það er rétt sem flutningsmaður nefnir, ég held að það skipti mjög miklu máli að hefja forvarnir sem fyrst og þar leikur auðvitað skólakerfið okkar lykilhlutverk en líka fjölskyldan og samtalið. Það skiptir mjög miklu máli í því sambandi að við kynnum okkur það efni sem til er og hefur verið prófað og virkjað og rannsakað. Það skiptir máli hvernig við verjum fjármagninu varðandi forvarnir og ég tek líka undir með flutningsmanni að hér erum við fyrst og fremst að reyna að efla skilning og virðingu milli kynja. Þó að bæði kyn verði sannarlega fyrir kynferðislegu ofbeldi þá sýna rannsóknir að það er auðvitað mun algengara gagnvart konum og ég held að við þurfum samfélagslegt átak og líka bara breyttan hugsunarhátt. Við þurfum að vera opin, við þurfum að vera opin gagnvart þessum þáttum gagnvart börnunum okkar til að mynda og tryggja það að við getum dregið úr þessari óæskilegu meinsemd í okkar samfélagi sem hefur auðvitað gríðarlega skaðleg áhrif á þolendur og líka þeirra nánustu og samfélagið í heild, leyfi ég mér að segja. Til þess að koma með spurningu um hvernig við getum færst enn framar þá velti ég fyrir mér þessum þætti félagasamtaka í því tilliti, hvort það sé ekki kominn tími til þess að opna vettvang þar sem er kannski meira samtal og meiri samvinna hjá þeim stóra hópi sem sinnir þolendum og vinnur í forvarnaskyni að málefninu.