aðgerðir gegn kynferðisbrotum og aukinn stuðningur við þolendur þeirra.
Frú forseti. Mig langaði bara að koma hér upp og þakka hv. þingmanni fyrir hans orð til okkar sem stöndum á bak við þessa þingsályktunartillögu. Karlaveldið fyrir mér er ekki spurning um femínisma eða neitt annað, fyrir mér er þetta spurning um réttlæti, spurning um jöfnuð, um að við höfum öll sömu mannréttindi og það er sorglegt að það hafi tekið þessi ár og áratugi að þróast yfir í það að við áttum okkur á því að hlutir eins og kynferðislegt ofbeldi eða kynbundið ofbeldi sé einfaldlega ekki eitthvað sem eigi að viðgangast í samfélaginu. Það er von mín varðandi það sem hv. þingmaður nefndi, að Ísland væri ekki framar öðrum löndum á þessu sviði, að við getum breytt því og að þegar 16 ár Vigdísar í forsetastól hætta að telja inn í vísitöluna þá fari þetta kannski að telja pósitíft inn í vísitöluna. En mig langaði bara að þakka fyrir góð orð.