aðgerðir gegn kynferðisbrotum og aukinn stuðningur við þolendur þeirra.
Virðulegi forseti. Mig langar að fylgja því aðeins eftir sem hefur verið sagt hér í ágætum ræðum og tala kannski svolítið almennt um þessa meinsemd sem þessari tillögu er ætlað að reyna að taka á eða bæta í þá vinnu sem hefur verið til staðar um áraraðir gegn kynferðisofbeldi. Það er ástæða þess að verið er að fara í svona sérstakar aðgerðir, horfa til þess hvernig er hægt að efla réttarstöðu þolenda og auka sakfellingarhlutfall, gera þolendum betur kleift að bæði kæra og síðan að komast í gegnum allt ferlið sem því fylgir og líka að efla sálfræðilegan, sálrænan og félagslegan stuðning. Eins og hv. þm. Magnús Árni Skjöld Magnússon kom inn á í sinni ræðu hér rétt áðan þá er þetta ein af þeim meinsemdum sem voru áður lengi svo faldar. Þótt stjórnvöld á hinum ýmsu stigum hafi unnið gegn þessu í áraraðir þá er það í hinu stærra samhengi mjög nýtilkomið að þetta sé tekið alvarlega þannig að það er mikið að vinna upp. Það er vitundarvakning í þessum efnum og það að breyta kerfunum þannig að þau nái raunverulega utan um þetta tekur langan tíma.
Önnur ástæða fyrir því hvað þetta er mikilvægt er hvað áhrifin eru gríðarleg á þá sem verða fyrir ofbeldi og þar af leiðandi samfélagið allt. Það er líka í raun annar angi af því hvað ofbeldið er falið. Það sem var falið var ekki bara hversu mikið af þessu ofbeldi var í gangi heldur líka hverjar afleiðingarnar eru. Gamli skólinn er svolítið bara að hrista af sér og gleyma og að þetta skipti í rauninni engu máli. En vísindarannsóknir sem hafa verið gerðar, sálfræðirannsóknir og rannsóknir á tengdum sviðum sem hafa verið gerðar á afleiðingum bæði tráma og ofbeldis almennt og sér í lagi kynferðisofbeldis, hafa leitt mjög skýrt í ljós að afleiðingarnar eru gríðarlegar. Þær eru ekki bara sálrænar heldur líkamlegar og þú getur séð alveg rosalega mikla fylgni milli ofbeldis og alls konar sjúkdóma sem fólk getur orðið fyrir af því að sál og líkami er eitt kerfi og svona áföll leggjast á allt kerfið, sérstaklega þegar ofbeldi verður í æsku og sérstaklega ef ekki er tekið á því fyrr en löngu seinna, þá geta afleiðingarnar orðið mjög miklar. Það felast því mjög mikilvægir samfélagslegir hagsmunir í því að stjórnvöld láti sig þetta varða.
Hluti af þessu er að sjálfsögðu líka hvað þetta er kynjað, að konur verða frekar fyrir þessu en karlar og konur hafa sögulega séð haft minni rödd og það leiðir til þess að lausnirnar eru líka pínu kynjaðar, eðli málsins samkvæmt, þó að sjálfsögðu þurfi þær að nýtast öllum. Sjálfur er ég þolandi, karlkyns, og hef tjáð mig um það. Ég lít alls ekki svo á, þó að lausnirnar og orðræðan sé oft meira í átt að konum, að það sé einhver ógn við mig eða mína stöðu eða að ég geti ekki verið þátttakandi í því. Þetta er að sjálfsögðu eitthvað sem gagnast öllum þolendum, að koma þessu meira upp á yfirborðið og vinna í lausnum.