almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég heyri það að hv. þingmaður er inni á þessari línu. Hann sér hvað við erum að gera. Hann er með okkur í liði. Ég er svo mikið að kalla eftir því að við séum öll í þessu liði, alveg sama í hvaða flokki við erum og hvað hann heitir. Við getum alveg sammælst um það að sá hópur sem við erum að berjast fyrir hér, að gefa honum þetta frelsi og þessa eftirgjöf, fái pínulítið að njóta sín. Þetta er síðasta æviskeiðið sem við erum að tala um og það á að vera uppskeruhátíð, gæðaár. Eins og hv. þingmaður bendir réttilega á er það mismunandi hvernig við erum stödd eftir starfsævina, það er mismunandi hvað við erum heppin, hvað við erum aflögufær með okkar tekjur. Við sjáum það bara núna, þó að það sé önnur saga en ástæða til að nefna það, mér finnst það bara allt í lagi, nú erum við að horfa upp á tekjulægsta fólkið í landinu berjast af öllum lífs og sálarkröftum við að reyna að ná í krónur, viðbótarkrónur í umslagið sitt til þess að mögulega geta skrimt af á milli mánaðamóta, því að það eru allt of margir sem gera það bara alls ekki. En ég þakka hv. þingmanni fyrir undirtektirnar og ég heyri að hann er sammála okkur hvað þetta varðar.