153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

almannatryggingar.

72. mál
[17:43]
Horfa

Viðar Eggertsson (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir að vera óþreytandi við að berjast fyrir þá sem minna mega sín í samfélagi okkar og mun ég vissulega leggja mig fram við að styðja hana í þeirri baráttu en vil þó stundum hafa forgangsröðunina kannski aðeins aðra, alla vega nú í umræðunni um afléttingu á skerðingum ellilífeyris. Hækkun frítekjumarka vegna atvinnutekna ellilífeyristaka kom til framkvæmda núna um áramótin síðustu og fól í sér að frítekjumark atvinnutekna hjá ellilífeyristökum hækkaði úr 100.000 kr. á mánuði upp í 200.000 kr., stór og mikilvægur árangur í að minnka skerðingar á lífeyri eldra fólks. Með þessari breytingu varð frítekjumark atvinnutekna átta sinnum hærra heldur en almenna frítekjumarkið, þ.e. frá þarsíðustu áramótum, það frítekjumark sem tekur til greiðslna úr lífeyrissjóðum og skiptir máli fyrir allan þorra eftirlaunafólks á Íslandi. Almenna frítekjumarkið, sem snertir aðallega greiðslur úr lífeyrissjóðum ellilífeyristakans sat enn einu sinni eftir og varð áfram aðeins 25.000 kr., óbreytt frá árinu 2017, og einhvern tíma fyrir ekki svo löngu sagði ég í þessum ræðustól, á þessum fáu dögum sem ég hef verið hér, að það hafi verið fyrir fimm árum en það eru bara heil sex ár síðan og rúmlega það — ekki um eina krónu. Allar lífeyrissjóðstekjur umfram þá fjárhæð koma til fullra skerðinga á greiðslum Tryggingastofnunar.

Hv. þm. Samfylkingarinnar, Jóhann Páll Jóhannsson, óskaði eftir því í fyrravetur á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis að tekið yrði saman minnisblað um hvernig ábatinn af tvöföldun frítekjumarks atvinnutekna dreifðist eftir tekjutíundum og kyni og jafnframt hvernig ábatinn myndi dreifast ef almenna frítekjumarkið yrði hækkað. Niðurstaða félagsmálaráðuneytisins og Tryggingastofnunar var sú að einungis um 1279 manns, 3% aldraðra, höfðu beinan ávinning af hækkun frítekjumarks atvinnutekna, þar af 67% karlar og 33% konur. Mesti ávinningurinn var samkvæmt áðurnefndri niðurstöðu hjá tekjuhæstu 10% eldra fólks en tekjulægri 70% myndu varla finna fyrir breytingunni. Öll skref sem stigin væru til hækkunar hins almenna frítekjumarks myndu dreifast miklu jafnar eftir tekjum og kyni. Ríkisstjórninni fannst það þó brýnast að styðja sérstaklega við tekjuhærri hópana og karla fremur konur. Í ljósi þessa er það vart forgangsmál núna að afnema allar skerðingar á atvinnutekjum hjá ellilífeyristökum, þótt við fögnum öllum kjarabótum til eldra fólks, því enn brýnna mál bíður afgreiðslu sem mun koma miklu stærri hópi ellilífeyristaka til góða og það hópi sem lifir við skertustu kjörin, hópur láglaunafólks sem hefur unnið illa borguð og slítandi störf, hópur sem hefur ekki lengur líkamlegt né andlegt þrek til að fara á vinnumarkaðinn og myndi varla þó fá vinnu með sína kennitölu. Það er okkar forgangshópur sem á það inni hjá okkur að við leysum úr fátækt. Því er það kannski kaldhæðnislegt að þetta mál sem hér og nú er til umræðu skyldi lenda ofar í dag á dagskrá þingsins en annað mál hv. þm. Ingu Sæland sem er einmitt um hið brýna mál að hækka almenna frítekjumarkið sem kemur þessum stóra hópi láglaunalífeyristaka miklu fremur til góða. Það mál er algjört forgangsmál í dag.

Ég vil leyfa mér að vitna hér í umsögn eldri borgara sjálfra, þ.e. Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, um það frumvarp sem tekið verður fyrir seinna í dag ef tími vinnst til, um almennt frítekjumark, með leyfi forseta:

„FEB bendir á að djúpstæð óánægja ríkir nú meðal eldri borgara vegna mikilla og ósanngjarnra tekjutenginga í lífeyriskerfinu, m.a. þar sem tekjur fólks frá lífeyrissjóðum valda meiri skerðingum en atvinnutekjur. Jafnframt er það harðlega gagnrýnt að grunnupphæðir ellilífeyris hafa ekki fylgt launaþróun, þannig að þeir lífeyrisþegar, sem ekki hafa aðrar tekjur en greiðslurnar frá TR, þurfa að draga fram lífið á tekjum sem eru langt undir lágmarkslaunum og framfærsluviðmiðum. FEB telur það mjög brýnt að hefja vinnu að endurskoðun þessa kerfis með það að markmiði að gera regluverkið sanngjarnara og einfaldara og draga úr tekjutengingum en lagfæra jafnframt kjör þeirra sem minnst hafa. Fyrirliggjandi frumvarp gengur vissulega í þá átt að draga úr tekjutengingum og jafna mun sem nú er á skerðingarreglum eftir því hvaðan tekjur eldri borgara eru upprunnar, sem er sanngirnismál. FEB telur því að sú breyting á almannatryggingalögunum sem frumvarpið gerir ráð fyrir gangi í rétta átt. Félagið er þó þeirrar skoðunar að eðlilegra væri að skref sem þetta væri hluti af róttækri og heildstæðri endurskoðun lífeyriskerfisins, þar sem einnig yrði leitast við að sníða af því aðra vankanta …”

Þetta er umsögn Félags eldri borgara í Reykjavík um málið sem hv. þm. Inga Sæland mun síðan leggja hér fram á dagskrá þingsins um almenna frítekjumarkið og hækkun á því. En það skýrir sig sjálft væntanlega í þessari umsögn félagsins að eldri borgarar leggja sjálfir áherslu á að frítekjumörk verði hækkuð án tillits til hvaða tekjur fólk fær og hvaðan þær koma, hvort sem þær koma til vegna inneignar í lífeyrissjóði eða vegna vinnu, að það verði lagt að jöfnu, að það skipti ekki máli hvaða tekjur séu taldar til en að það sé brýnt að hækka frítekjumark lífeyristekna til samræmis við frítekjumark atvinnutekna svo alls jafnræðis sé gætt.