153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

almannatryggingar.

72. mál
[17:51]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Viðari Eggertssyni fyrir hans góða innlegg hér í umræðuna. Ég vil nú byrja á því að gleðja hann með því að Flokkur fólksins er einmitt flokkurinn sem berst með kjafti og klóm gegn fátækt og við höfum gert það síðan við komum á þing að berjast fyrir því að fólk fái skatta- og skerðingarlausa lágmarksframfærslu. Við byrjuðum með 300.000 kr. árið 2017 og núna í haust sem leið var það forgangsmál Flokks fólksins að mæla fyrir frumvarpi 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust til að taka utan um þann hóp sem hv. þingmaður er einmitt að nefna hér. Að við ættum kannski frekar að líta í þessa átt eða hina áttina — spurningin hér snýst um frelsi. Spurningin í því frumvarpi sem ég mæli fyrir nú snýst um virðingu. Hvort þetta mál eða málið um almenna frítekjumarkið sem ég mæli fyrir síðar í dag ef klukkan leyfir það, annars færist það bara til þangað til í næstu viku, er algerlega hipsum haps. Hvort ég vildi hafa það á undan af því að það lendir ekki í forgangsröð meðal fyrstu fimm málanna sem við vorum með hér í haust — þetta er allt saman eftir númerum. Flokkur fólksins setti inn hvorki fleiri né færri en 70 þingmannamál um leið og þingið var sett í fyrrahaust. Svo er það skrifstofunnar að reyna að raða því niður, samt ekki langt frá hvert öðru því að ég vil að þessi mál fái að vera svolítið framarlega. Þannig að ég spyr bara hv. þingmann hvort hann gleðjist ekki af öllu hjarta yfir öllu því sem við erum að berjast fyrir og sérstaklega þessu með 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. Það yrði sannarlega til bóta ef þessi ágæta ríkisstjórn tæki sig saman í andlitinu og færi að mylja niður fátæktargildrurnar í stað þess að halda áfram að lengja í hengingarólinni og herða hnútinn.