153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

almannatryggingar.

72. mál
[17:54]
Horfa

Viðar Eggertsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að halda mig við það að þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir hennar orð og hennar baráttu. Jú, jú, ég þakka alveg líka fyrir að fá þessa stuttu, ágætu örkennslustund í baráttu Flokks fólksins hér á Alþingi frá því að þau komu hér til starfa og eru búin að vera óþreytandi í þessum málaflokki. Það er alveg rétt sem hv. þm. Inga Sæland, segir, það er nú einu sinni einhvern veginn svoleiðis, stjórnarfarið á Íslandi, að annaðhvort ertu í meiri hluta og ræður öllu eða þú ert í minni hluta og ræður nánast engu og færð bara orðið í ræðustól hér. Ég verð að segja að ég hef löngum dáðst að því hversu góð hv. þingmaður er í ræðustólnum og hversu góð mál, mörg hver, hún er með hér. Það sannaðist ágætlega í þessari umræðu um þetta ágæta frumvarp hér að hv. þingmaður kann vissulega koma fyrir sig orði og það hefur verið mér óblandin ánægja að fylgjast með því. Ég þekki svolítið til þess hvað Flokkur fólksins hefur verið að gera hér á þinginu og hef kynnt mér mörg þeirra mál. Ég er mjög glaður að heyra að við erum sammála um að það skiptir höfuðmáli að hugsa um fólkið sem hefur erfiðað allt sitt líf og getur ekki meir og er samt á ótrúlega lágum kjörum. Það skrimtir varla. Ég þekki þetta sjálfur. Ég er kominn af þessu fólki. Ég er þetta fólk.