153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

aðgerðir stjórnvalda í ríkisfjármálum.

[15:04]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Við upplifum núna að verðbólgan er komin í tveggja stafa tölu í fyrsta sinn í 14 ár. Við erum að upplifa vinnumarkaðinn, þar er rembihnútur í gangi og allir í dag að tala m.a. um hvaða þátt krónan spilar í þessu öllu saman. Aðstæður, eins og þær eru í dag, vinna a.m.k. ekki með heimilunum, almenningi eða venjulegu fólki, þvert á móti. Við sjáum m.a. miklar hækkanir á matarkörfunni og þar eru liðirnir sem hækka mest undanþegnir samkeppni. Það ýtir undir að mínu mati, og við sjáum það, auknar verðhækkanir á kostnað neytenda og heimila en ríkisstjórnin sjálf gerir ekkert til að liðka fyrir. Það liggur við að þurfi að senda út leitarhunda að ráðherrum í ríkisstjórninni sem hafa raunverulegan áhuga á frelsi og samkeppni og hvaða þýðingu það hefur fyrir neytendur. Við sjáum líka í fréttum að mörg heimili núna hafa ekki tækifæri á að endurfjármagna sig og sín lán og bæta stöðu sína, því þau eru föst. Þau hafa staðið í skilum með lánin fram að þessu en geta ekki endurfjármagnað sig. Því bitnar þetta á allan hátt á heimilum í landinu. En þau þurfa að sjálfsögðu, eins og fyrirtækin, fyrirsjáanleika og stöðugleika, en við vitum að það þarf að fara í raunverulegar aðgerðir til að ná þessum stöðugleika. Við þurfum að fara í það að endurskoða vinnumarkaðslíkanið. En þessi aðstaða kallar líka á meiri aga í ríkisfjármálunum og honum er ekki fyrir að fara í dag.

Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Er eitthvert plan til að taka á þessum lausatökum í ríkisfjármálum eða er áætlunin bara að halda áfram á bensíngjöfinni í ríkisútgjöldum og víkka út lántökuheimildir út í hið óendanlega og reka ríkið í rauninni áfram á okurlánum? Þið munið að við erum með hæstu vaxtagjöldin innan OECD og því má segja að ríkið sé að taka lán til að redda sér fyrir horn vegna útgjaldaþenslu í ríkisfjármálum. Það virkar nokkurn veginn eins og ríkið sé komið af stað í blússandi bissness í smálánaviðskiptum. (Forseti hringir.) Því þurfum við að setja stöðugleika í forgang. Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að við náum í langþráðan stöðugleika, því það er langt í hann.