153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

aðgerðir stjórnvalda í ríkisfjármálum.

[15:07]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir að vekja enn máls á þessu stóra viðfangsefni sem er að mínu viti stærsta viðfangsefnið sem við stöndum frammi fyrir núna, þ.e. að ná tökum á verðbólgunni. Ég viðurkenni að ég hefði viljað sjá að mælingin í dag hefði ekki farið upp fyrir 10% markið. Verðbólgan ætlar að verða þrálátari en spáð var, það liggur fyrir. Ástæðurnar eru margþættar og við gerum okkur öll grein fyrir því sem hér erum að m.a. vegna aðstæðna, fyrst í heimsfaraldri og svo þegar stríðið skall á, erum við að kljást við verðbólgu á mjög breiðum grunni. Kosturinn fyrir okkur hér á Íslandi, miðað við annars staðar í Evrópu, er að það er margt sem vinnur með okkur. Þá vil ég sérstaklega nefna að hér er kröftugur vöxtur, það eru mikil umsvif í hagkerfinu og skuldastaðan er ágæt í alþjóðlegu samhengi.

Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Ríkisstjórnin hefur auðvitað við framlagningu fjárlagafrumvarps boðað ákveðið aðhald. Hins vegar er það alveg rétt að útgjöld jukust milli umræðna en það var vegna brýnna mála. Ég vil þá sérstaklega nefna heilbrigðismál og löggæslu sem hv. þingmenn voru sammála um að bæta þyrfti meira í. Aðra aukningu mátti að mörgu leyti rekja til annarra þátta sem m.a. eru tæknilegir þættir og varða það hreinlega hvernig við stöndum skil á reikningum okkar.

Mér finnst hins vegar mikilvægt núna að við horfum til þess, eins og ég sagði við hv. þingmann á dögunum, í umræðum í þessum sal, að skoða leiðir til að beita frekara aðhaldi án þess að skerða þessa grunnþjónustu sem er mikilvæg og samstaða hefur verið um í þessum sal að bæta, að við skoðum leiðir til frekari tekjuöflunar. Síðast en ekki síst skiptir máli að við horfum líka á hvað við getum gert, ekki bara í gegnum ríkisfjármálin heldur í samfélaginu.

Ég vil nefna ábendingar Samkeppniseftirlitsins. Ég vil nefna matvælaverð í landinu þar sem ný (Forseti hringir.) matvörugátt verður opnuð í næsta mánuði sem mun gera neytendum kleift að fylgjast með þróun (Forseti hringir.) á verðlagningu matvöru og ég vil nefna þá vinnu sem stendur yfir í innviðaráðuneytinu varðandi leigumarkaðinn.