153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

aðgerðir stjórnvalda í ríkisfjármálum.

[15:09]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Já, það verður að segjast eins og er að mér finnst eins og það sé einhver sviðsskrekkur í ríkisstjórninni. Við munum Covid, þá voru haldnir blaðamannafundir liggur við vikulega hjá ríkisstjórninni. En þegar við erum að upplifa núna verðbólgu sem er komin í blússandi sókn þá er eins og það sé enginn í marki hjá ríkisstjórninni þegar kemur að heimilum landsins, bara enginn. Ríkisstjórnin er ekki til staðar. Ég vil minna á að útgjöldin á milli umræðna fóru úr 90 milljörðum miðað við framlagningu fjárlagafrumvarpsins í 120 milljarða og varðandi þá þætti sem hæstv. ráðherra bendir á þá fór ekki nema brotabrot í aukningu á nákvæmlega þeim grunnþáttum samfélagsins. Það er einhver beygur í ríkisstjórninni við að taka almennilega á ríkisútgjöldum. Ég undirstrika að það er eins og ríkisstjórnin vilji reka sig áfram á smálánum frá degi til dags eða mánuði til mánaðar. Viðreisn var eini flokkurinn sem sagði bókstaflega nei við auknum lántökuheimildum til ríkissjóðs af því að við vildum strax setja aga í þennan galskap hjá hæstv. ríkisstjórn. Mér finnst miður (Forseti hringir.) að það skuli ekki koma hér skýrari tónar frá ríkisstjórninni um hvernig hún ætlar að vinna bug á þessari verðbólgu sem er orðin mjög alvarleg og er með mun breiðari skírskotun nú en áður.