innleiðing loftslagslöggjafar ESB.
Herra forseti. Ég ítreka spurninguna um hvenær hæstv. ráðherra varð fyrst var við þessa miklu hættu. Ég minni líka á tilganginn með þessu en hann er sá að draga úr flugi, draga úr flugferðum. Það leiðir hugann að því að það dugar ekki fyrir okkur að vera jafnsett öðrum Evrópulöndum hvað þessi nýju gjöld og refsiskatta varðar vegna þess að þar er gert ráð fyrir að áhrifin verði þau, að meðaltali innan Evrópusambandsins, að eftir 27 ár verði flug þriðjungur af því sem það hefði orðið.
Er það með öðrum orðum markmið þessarar ríkisstjórnar að taka þátt í því að reyna að draga sem mest úr komum ferðamanna til landsins því að þeir koma jú flestir með flugi? Er það ásættanlegt að taka þátt í stefnu um að draga jafnt og þétt úr komum ferðamanna til Íslands og ef sú er raunin þarf þá ekki að endurskoða eða fresta áformum um stórkostlega uppbyggingu í Keflavík?