153. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2023.

innleiðing loftslagslöggjafar ESB.

[15:17]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Þetta mál hefur verið á dagskrá ríkisstjórnarinnar a.m.k. frá árinu 2021, þ.e. þetta tiltekna regluverk, og á svipuðum tíma hefur það líklega komið til kasta hv. utanríkismálanefndar en ég þori ekki nákvæmlega að fara með það, ég er ekki með það fyrir framan mig hvenær málið kom fyrst inn á borð ríkisstjórnar. Það hefur verið á forræði utanríkisráðherra þannig að ég treysti mér ekki alveg til að nefna nákvæmar dagsetningar. Ég get bara ítrekað það sem ég sagði hér áðan. Íslensk stjórnvöld hafa haldið þessum sjónarmiðum mjög skýrt til haga. Þetta varðar ekki eingöngu okkar landfræðilegu legu heldur, eins og hv. þingmaður bendir á, bæði fluggeirann á Íslandi og ferðaþjónustuna og þar eru auðvitað miklir hagsmunir undir. En stóra verkefnið er líka að við þurfum að tryggja að aðgerðir skili raunverulegum árangri. Við höfum bent á að það er ekkert útilokað að önnur ríki hreinlega tækju yfir þetta hlutverk Íslands, að vera tengimiðstöð, sem ekki væru aðilar að þessu meðan ekki eru til lausnirnar sem tryggja að flugvélar geti flogið á grænni orku. (Forseti hringir.) Hins vegar styttist nú í það að innanlandsflugið fari yfir á rafmagn eða ég hef a.m.k. trú á því að það verði á næstu fáum árum (Forseti hringir.) þannig að þetta getur gengið hratt á næstu árum.