hækkun persónuafsláttar og verkbann SA.
Virðulegur forseti. Undanfarnar vikur hefur mikið gengið á í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Efling ákvað að boða til verkfalls og viðbrögð Samtaka atvinnulífsins við verkfallsaðgerðum Eflingar eru vægast sagt fordæmalaus. Samtökin hyggjast beita verkbanni gegn tugum þúsunda félagsmanna Eflingar og svipta þá launum. Ljóst er að verkbannið mun valda miklu fjárhagslegu tjóni hjá félagsmönnum Eflingar og jafn miklu fjárhagslegu tjóni hjá fyrirtækjum landsins. Enginn mun græða.
ASÍ hefur þegar höfðað mál vegna þess að samtökin telja verkbannið ólögmætt. Hvað finnst hæstv. forsætisráðherra um að Samtök atvinnulífsins grípi til svo alvarlegra aðgerða sem ljóst er að munu kosta samfélagið umtalsvert meira en verkfallsaðgerðir Eflingar? Ríkisstjórnin getur ekki firrað sig ábyrgð gagnvart láglaunafólki þegar við skattleggjum fátækt fólk mun meira en áður fyrr. Persónuafsláttur er í dag rétt tæpar 60.000 kr. á mánuði og skattleysismörkin í kringum 178.000 kr. á mánuði. Á það hefur ítrekað verið bent að persónuafslátturinn hafi ekki fylgt launa- og verðlagsþróun í gegnum tíðina og því ættu 400.000 kr. laun á mánuði að vera skatta- og skerðingarlaus. Með réttu ætti persónuafsláttur að vera tæpar 90.000 kr. á mánuði en stjórnvöld hafa látið hjá líða að tryggja þessi réttindi láglaunastétta.
Flokkur fólksins hefur lagt til að skattleysismörkin verði hækkuð í 400.000 kr. mánuði og jafnframt að persónuafsláttur falli niður hjá hátekjufólki. Hvers vegna eru forstjórar með milljónir eða tugi milljóna á mánuði að fá sama persónuafslátt og vinnandi fólk á lágmarkslaunum og fátækt fólk á lífeyrissjóðslaunum? Fólk á ekki nóg til að borga fyrir húsaleigu, hvað þá mat og aðrar lífsnauðsynjar fyrir börnin sín. Hvers vegna grípur ríkisstjórnin ekki til aðgerða til að draga úr skattlagningu á fátækt og sér til þess að persónuafsláttur verði hækkaður? Ég myndi segja að það væri besta leiðin vegna þess að bara með því að hækka persónuafsláttinn upp í það sem hann ætti að vera í dag þá værum við að tala um umtalsverðar hækkanir. Ef þetta var hægt 1988 þá ætti þetta að vera hægt í dag.