aðgerðir stjórnvalda gegn verðbólgu.
Herra forseti. Aftur er alltaf áhugavert að heyra hv. þingmenn túlka og leiklesa það sem hæstv. ráðherrar hafa sagt. Ég held að hæstv. ráðherrar hafi talað nokkuð skýrt. Við lögðum fram aðhaldssöm fjárlög. Þar var töluverð andstaða við þá tekjuöflun sem kynnt var til leiks, sem snerist fyrst og fremst um að krónutölugjöld rýrnuðu ekki meira að raunvirði en þau hefðu þegar gert. Töluverð andstaða var við það í þessum sal en um leið var mikill vilji til þess að bæta í útgjöld. Ég get bara tekið undir það, því að það var verið að auka útgjöld til mikilvægra málaflokka eins og heilbrigðismála og löggæslu.
Ég vil líka segja að það hafi verið mjög skýrt hjá mér í öllum þessum umræðum um verðbólgu að þar beri allir aðilar ábyrgð. Að sjálfsögðu ber Seðlabankinn ábyrgð. Að sjálfsögðu berum við ábyrgð hér á ríkisfjármálunum og að sjálfsögðu skiptir líka máli hvað gerist á vinnumarkaði.
Í fyrsta lagi vil ég segja að það skiptir miklu máli að farsæl niðurstaða fáist í kjarasamninga á vinnumarkaði. Það er lykilatriði til að hægt sé að takast á við verðbólgu og tryggja hér ákveðinn stöðugleika. Það er lykilatriði sem gert hefur verið af hálfu Seðlabankans, ekki bara hvað varðar stjórntæki vaxta heldur líka það sem gert var á húsnæðismarkaði. Það þarf að gera meira og ég vitnaði hér áðan til þess sem innviðaráðherra leiðir, sem varðar sérstaklega leigumarkaðinn þar sem við höfum áhyggjur af því að við eigum eftir að sjá hækkanir á leiguverði, og mjög mikilvægt er að þær tillögur líti dagsins ljós sem fyrst. Þar sitja aðilar vinnumarkaðarins við borðið.
Að sjálfsögðu skiptir aukið aðhald á neytendamarkaði líka máli. Þar hafa stjórnvöld kannski ekki gert nóg á undanförnum árum og þess vegna hef ég fagnað því sem ákveðið var í tengslum við gerð kjarasamninga, að auka möguleika fólks á að sýna aðhald á dagvörumarkaði.
Að lokum vil ég segja að þó að skuldastaðan sé góð og þótt munurinn á verðbólgunni hér og víða annars staðar sé sá að hér er mikill vöxtur og mikil umsvif, sem gerir í raun auðveldara að takast á við hana en ella, (Forseti hringir.) þá þurfum við að horfa til aðhalds sem ekki er eingöngu í rekstri heldur líka tekjuöflun.